Stjórn Akureyrarstofu

198. fundur 05. nóvember 2015 kl. 16:15 - 17:53 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Logi Már Einarsson formaður
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Eva Dögg Fjölnisdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Kynjasamþætting - innleiðing 2015

Málsnúmer 2015110039Vakta málsnúmer

Akureyrarbær hefur ákveðið að innleiða kynjasamþættingu og þar með talda kynjaða fjárhagsáætlunargerð. Greint frá fræðslu um þau vinnubrögð og rætt um hugmyndir að verkefnum sem hentað geta til að hefja þá vinnu á vettvangi stjórnarinnar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að gera eftirfarandi verkefni að upphafsskrefum í kynjasamþættingu og felur framkvæmdastjóra að ýta þeim úr vör.

1. Listaverkakaup bæjarins verði kortlögð aftur í tímann með tilliti til kynja og mótuð innkaupastefa með hliðsjón af niðurstöðunum.
2. Mótaðar verði verklagsreglur sem tryggja jafnt aðgengi, ásókn og skrásetningu á styrkjum úr menningarsjóði með tilliti til kynjasjónarmiða.

2.Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál 2013-2015

Málsnúmer 2013010068Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðuna í viðræðum við menntamálaráðuneytið um endurnýjun samningsins.

3.Náttúrugripasafnið á Akureyri - sýningargripir

Málsnúmer 2014100066Vakta málsnúmer

Rætt um málefni safnsins og þeirra gripa sem áhugafólk í Hrísey hefur áhuga á að flytja þangað. Lögð fram áætlun um næstu skref.
Stjórn Akureyrarstofu telur að áður en tekin verður endanleg ákvörðun í málinu verði skorið úr um eignarhald þeirra gripa sem tilheyrðu Náttúrugripasafninu á Akureyri og að gerð verði fagleg úttekt á ástandi þeirra. Unnið verði eftir þeirri vinnuáætlun sem lögð var fram á fundinum.

4.Menningarfélag Akureyrar (MAk) ses - ársreikningur 2014-2015

Málsnúmer 2015100141Vakta málsnúmer

Ársreikningurinn lagður fram til kynningar.

5.Menningarfélagið Hof ses - aðalfundur 2015

Málsnúmer 2015100095Vakta málsnúmer

Ársreikningur Menningarfélagsins Hofs lagður fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:53.