Skipulagsnefnd

197. fundur 18. febrúar 2015 kl. 08:30 - 10:40 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Már Ingvarsson formaður
  • Eva Reykjalín Elvarsdóttir
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Edward Hákon Huijbens
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson Verkefnisstjóri
Dagskrá

1.Oddeyri - deiliskipulag

Málsnúmer 2014100041Vakta málsnúmer

Fulltrúar skipulagsnefndar í vinnuhópi um heildarskipulagningu Oddeyrar kynntu stöðu verkefnisins.
Lagt fram til kynningar.

2.Reglur um útimarkaði og sölutjöld á Akureyri - endurskoðun

Málsnúmer 2005080075Vakta málsnúmer

Fulltrúar skipulagsnefndar í vinnuhópi um endurskoðun á reglunum kynntu stöðu verkefnisins.
Lagt fram til kynningar.

3.Stefnumörkun skipulagsnefndar - deiliskipulag

Málsnúmer 2014090150Vakta málsnúmer

Næstu verkefni skipulagsnefndar í deiliskipulagsgerð.

Nú þegar skipulagsvinnu Norður-Brekku - neðan Þórunnarstrætis er að ljúka er mikilvægt að skoða hvar okkur á að bera niður næst.
Skipulagsstjóra og formanni er falið að koma fram með tillögur á grundvelli umræðu á fundinum.

4.Stefnumörkun skipulagsnefndar - endurskoðun á reglum um gatnagerðargjöld og lóðaveitingar

Málsnúmer 2014090150Vakta málsnúmer

Umræða um væntanlegar breytingar á gjaldskrá gatnagerðargjalda og reglum um lóðaveitingar.
Skipulagsstjóra og formanni er falið að koma fram með tillögur á grundvelli umræðu á fundinum.

Fundi slitið - kl. 10:40.