Oddeyri - stefnumörkun og skipulag

Málsnúmer 2014100041

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 190. fundur - 29.10.2014

Stefnumótun skipulagsnefndar varðandi nýtingu og skipulag Oddeyrar neðan Glerárgötu sunnan Glerár.
Lagt er til að skipulagsnefnd skipi þriggja manna nefnd sem vinni að því að leggja grunn að frekari skipulagsvinnu, hvernig samráði við helstu hagsmunaaðila og íbúa verði háttað ásamt mótun framtíðarsýnar. Tillaga að aðferðafræði verði tilbúin í janúar 2015. Starfsmaður nefndarinnar verður skipulagsstjóri.

Skipulagsnefnd tilnefnir eftirtalda aðila í nefndina: Tryggva Má Ingvarsson B-lista, Sigurjón Jóhannesson D-lista og Ólínu Freysteinsdóttur S-lista.

Skipulagsnefnd - 197. fundur - 18.02.2015

Fulltrúar skipulagsnefndar í vinnuhópi um heildarskipulagningu Oddeyrar kynntu stöðu verkefnisins.
Lagt fram til kynningar.