Skipulagsnefnd

111. fundur 30. mars 2011 kl. 08:00 - 12:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Snæbjarnarson formaður
  • Árni Páll Jóhannsson
  • Haraldur Sveinbjörn Helgason
  • Auður Jónasdóttir
  • Sigurður Guðmundsson
  • Leifur Þorsteinsson
  • fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Samþykkt um skipulagsnefnd - endurskoðun

Málsnúmer 2011030109Vakta málsnúmer

Fram var lögð tillaga frá skipulagsstjóra um nýja samþykkt um skipulagsnefnd unna í samráði við bæjarlögmann og formann skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að hún verði samþykkt.

 

2.Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra

Málsnúmer 2011030110Vakta málsnúmer

Fram var lögð tillaga frá skipulagsstjóra um nýja samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra unna í samráði við bæjarlögmann og formann skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að hún verði samþykkt. 

 

3.Undirhlíð 1-3 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2011030057Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. mars 2011 þar sem Logi Már Einarsson f.h. SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, óskar eftir að kvöð í deiliskipulagi um lágmarksaldur eigenda og/eða íbúa fjölbýlishúss (F1) við Undirhlíð verði lækkuð úr 55 árum í 50 ár.
Borist hefur jákvæð umsögn skólanefndar frá 21. mars 2011.

Meirihluti skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að gera tillögu að deiliskipulagsbreytingu sbr. 3 mgr. 44. gr. skipulagslaga sem síðar verði lögð fyrir nefndina. Auður Jónasdóttir (V-lista) sat hjá við afgreiðslu. Sigurður Guðmundsson (A-lista) óskar bókað: Finnst afgreiðslan varhugaverð en nauðsynleg í ljósi markaðsaðstæðna.

 

4.Akureyrarflugvöllur - skipulagsreglur

Málsnúmer 2011030157Vakta málsnúmer

Erindi frá Hermanni Hermannssyni f.h. Isavia ohf., þar sem hann óskar eftir að kynntar verði tillögur að skipulagsreglum fyrir Akureyrarflugvöll sbr. loftferðalög nr. 60/1998.
Á fundinn komu fulltrúar Isavia og kynntu reglurnar.
Frá Isavia komu Hermann Hermannsson verkfræðingur, Ívar Pálsson lögmaður og Sigurður Hermannsson frá Akureyrarflugvelli. Einnig komu Jónas Vigfússon sveitastjóri frá Eyjafjarðarsveit og Jón Hrói Finnsson sveitastjóri frá Svalbarðsstrandahreppi.

Lagt fram til kynningar. Skipulagsnefnd þakkar fyrir kynninguna.

5.Miðbær norðurhluti - breyting á deiliskipulagi, Hólabraut - Laxagata

Málsnúmer SN110012Vakta málsnúmer

Lögð var fram húsakönnun á svæðinu unnin af X2 skipulag og hönnun dagsett 11. mars 2011.

 

6.Oddeyri - suðurhluti. Reitur 6592

Málsnúmer 2010090006Vakta málsnúmer

Lögð var fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu á skipulagi götureitsins sbr. samþykkt skipulagsnefndar 15. september 2010. Til er húsakönnun á reitnum sem unnin var 1995.

Skipulagsnefnd samþykkir að akstursstefna á Hríseyjargötu verði til norðurs. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan þannig breytt verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

7.Hverfaskipting og nafngiftir

Málsnúmer 2010120067Vakta málsnúmer

Lagðar voru fram tillögur nafnanefndar um nöfn á nokkrum hverfum innan lögsögu Akureyrarkaupstaðar.

Skipulagsnefnd frestar erindinu og óskar eftir frekari hugmyndum fyrir hverfi 36 frá nafnanefnd.

8.Langholt 2 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2011030012Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi frá Gunnari H. Gunnarssyni, sem skipulagsnefnd frestaði á fundi 9. mars 2011, þar sem hann f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, Rangárvöllum 2, sækir um lóð fyrir spennistöð við Langholt, norðan Undirhlíðar 1 - 3.

Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að gera tillögu að deiliskipulagsbreytingu sbr. 3 mgr. 44. gr. skipulagslaga sem síðar verði lögð fyrir nefndina.

Skipulagsnefnd gerir kröfu um góða hönnun á útliti hússins. 

9.Skipulagsdeild - samskipti

Málsnúmer 2011020148Vakta málsnúmer

Bæjarráð vísaði þann 3. mars 2011 til skipulagsnefndar erindi frá Matthildi Sigurjónsdóttur úr viðtalstíma bæjarfulltrúa.
Matthildur ræddi samskipti við skipulagsyfirvöld vegna verklegra framkvæmda sem henni þótti lítt leiðbeinandi.

Samkvæmt meðfylgjandi skjali þar sem ferill umsóknar um byggingarleyfið er rakinn er gerð skýr grein fyrir málsferlinu eins og það var statt á hverjum tíma sbr. útsend bréf. Þar sem ekki var til deiliskipulag af umræddu svæði ber að setja slíkar umsóknir í grenndarkynningu sbr. lög þar um. Að því loknu er gefið út byggingarleyfi að uppfylltum skilyrðum um aðaluppdrætti og önnur tilskilin gögn er varða framkvæmdina. Skipulagsnefnd tekur undir með bréfritara að alltaf sé hægt að bæta upplýsingagjöf er varða skipulags- og byggingarmál sem oft á tíðum eru torskilin almenningi og tekur málið til skoðunar.

10.Jaðarsíða 6-12 - umsókn um skil á lóð eða framlengingu á byggingarfresti

Málsnúmer 2011030121Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. mars 2011 þar sem Jónas Ingi Ketilsson f.h. Hagviðar ehf., kt. 450808-0750, óskar eftir endurskoðun Akureyrarbæjar á afgreiðslu fyrri umsóknar um að skila inn lóð nr. 6-12 við Jaðarsíðu eða að frestur til framkvæmda verði framlengdur. Nánari skýringar í meðfylgjandi bréfi.

Skipulagsnefnd getur ekki orðið við erindinu um að lóðinni verði skilað þar sem framkvæmdir eru hafnar. Veittur er framkvæmdafrestur til eins árs eða til 1. apríl 2012.

11.Sörlaskjól 9 - umsókn um hesthúsalóð

Málsnúmer BN110022Vakta málsnúmer

Erindi dags. 27. janúar 2011 þar sem Pétur Vopni Sigurðsson sækir um lóð fyrir hesthús við Sörlaskjól 9. Meðfylgjandi er greiðslumat frá ARION banka.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Skipulags- og byggingarskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

12.Norðurtangi 7 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2011030080Vakta málsnúmer

Erindi dags. 8. mars 2011 þar sem Kristinn Hreinsson f.h. Rafeyrar ehf., kt. 430594-2229, sækir um lóð nr. 7 við Norðurtanga. Meðfylgjandi er umsögn um fyrirtækið og greiðslumat frá CREDITINFO.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið. Skipulags- og byggingarskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

13.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2010-2011

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Fundargerð dags. 9. mars 2011. Lögð fram fundargerð 339. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 14 liðum.

Lagt fram til kynningar.

14.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2010-2011

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Fundargerð dags. 16. mars 2011. Lögð fram fundargerð 340. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 12 liðum.

Lagt fram til kynningar.

15.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2010-2011

Málsnúmer 2010010128Vakta málsnúmer

Fundargerð dags. 23. mars 2011. Lögð fram fundargerð 341. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 12 liðum.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:00.