Samfélags- og mannréttindaráð

124. fundur 17. apríl 2013 kl. 17:00 - 18:10 Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson varaformaður
  • Helga Eymundsdóttir
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Regína Helgadóttir
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson áheyrnarfulltrúi
  • Friðbjörg J Sigurjónsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Guðrún Þórsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá
Helga Eymundsdóttir og Inda Björk Gunnarsdóttir L-lista mættu í forföllum Hlínar Bolladóttur og Heimis Haraldssonar.
Elías Gunnar Þorbjörnsson D-lista mætti í forföllum Maríu H. Marinósdóttur.

1.Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs 2011-2014

Málsnúmer 2010090136Vakta málsnúmer

Starfsáætlun samfélags- og mannréttindaráðs yfirfarin og endurskoðuð.

2.Samfélags- og mannréttindadeild - langtímaáætlun

Málsnúmer 2013030344Vakta málsnúmer

Unnið að langtímaáætlun málefna sem heyra undir samfélags- og mannréttindaráð.
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti til fundar kl. 17:25.

3.Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2011-2015 - jafnréttisáætlanir stofnana

Málsnúmer 2011100052Vakta málsnúmer

Í jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að allir vinnustaðir þar sem starfa fleiri en 25 starfsmenn skuli gera jafnréttisáætlanir í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. Skýrslur um gang mála skulu lagðar fyrir samfélags- og mannréttindaráð árlega.

Samfélags- og mannréttindaráð óskar eftir skýrslum frá þeim stofnunum Akureyrarbæjar sem gert hafa sérstakar jafnréttisáætlanir þar sem gerð verði grein fyrir stöðu mála. Óskað er eftir svörum fyrir 15. maí nk.

4.Ungmennaráð - áheyrnarfulltrúi

Málsnúmer 2011030133Vakta málsnúmer

Tekin fyrir munnleg ósk frá ungmennaráði um að eiga áheyrnarfulltrúa í samfélags- og mannréttindaráði.

Samfélags- og mannréttindaráð óskar eftir að fá fulltrúa frá ungmennaráði í heimsókn á næsta fund til að ræða málið.

5.Ungmennaráð - Ungt fólk og lýðræði

Málsnúmer 2011030133Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ályktun ungmenna frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði sem haldin var á Egilsstöðum 20.- 22. mars sl. Fulltrúar frá ungmennaráði Akureyrar sóttu ráðstefnuna. Í ályktuninni er m.a. skorað á íslensk stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög, að leita meira til ungmenna og taka tillit til skoðana þeirra á málefnum samfélagsins, einkum þau sem varða ungmennin sjálf.

Fundi slitið - kl. 18:10.