Öldungaráð

21. fundur 07. september 2022 kl. 13:00 - 15:00 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hjálmar Pálsson formaður
  • Hildur Brynjarsdóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson
  • Hallgrímur Gíslason fulltrúi ebak
  • Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi ebak
  • Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi ebak
  • Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi hsn
Starfsmenn
  • Halla Birgisdóttir Ottesen forstöðumaður tómstundamála
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson Forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá
Öldungaráð sem kjörið var á fundi bæjarstjórnar 7. júní sl. er skipað eftirtöldum:

Aðalmenn:
Hjálmar Pálsson, formaður
Hildur Brynjarsdóttir
Brynjólfur Ingvarsson

Varamenn:
Þórhallur Harðarson
Maron Berg Pétursson
Málfríður Stefanía Þórðardóttir

Aðrir nefndarmenn:
Hallgrímur Gíslason fulltrúi EBAK
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir fulltrúi EBAK
Þorgerður Jóna Þorgilsdóttir fulltrúi EBAK
Eva Björg Guðmundsdóttir fulltrúi HSN

1.Öldungaráð - samþykkt

Málsnúmer 2022090479Vakta málsnúmer

Farið yfir samþykkt fyrir öldungaráð Akureyrarbæjar.

2.Öldungaráð - starfsreglur

Málsnúmer 2022090479Vakta málsnúmer

Farið yfir starfsreglur öldungaráðs Akureyrarbæjar.

3.Öldungaráð - kosning varaformanns

Málsnúmer 2022090570Vakta málsnúmer

Samkvæmt 4. grein samþykktar um öldungaráð skipar bæjarstjórn formann en ráðið kýs sér varaformann.
Öldungaráð samþykkir með öllum greiddum atkvæðum að varaformaður verði Hallgrímur Gíslason.

4.Virk efri ár

Málsnúmer 2022081092Vakta málsnúmer

Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs og Halla Birgisdóttir forstöðumaður tómstundamála kynntu verkefnið Virk efri ár.

5.Aðgerðaáætlun í málefnum eldri borgara

Málsnúmer 2022090478Vakta málsnúmer

Rætt um stöðu aðgerðaáætlunar í málefnum eldra fólks.
Öldungaráð telur nauðsynlegt að fá kynningu á stöðu aðgerðaáætlunar í málefnum eldra fólks á næsta fundi ráðsins. Öldungaráð telur einnig mikilvægt að bæjarráð hugi sem fyrst að skipan starfshóps fyrir annan áfanga aðgerðaáætlunarinnar.

Fundi slitið - kl. 15:00.