Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2014/2015

Málsnúmer 2014090067

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3428. fundur - 18.09.2014

Lagt fram bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu dags. 2. september 2014 þar sem fram kemur auglýsing til sveitarstjórna um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2014/2015. Umsóknarfrestur er til 30. september 2014.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsókn vegna Hríseyjar og Grímseyjar.

Bæjarráð - 3432. fundur - 16.10.2014

Logi Már Einarsson S-lista vék af fundi kl. 11:20.
Lagt fram til kynningar bréf dagsett 9. október 2014 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015, 158 þorskígildistonn vegna Hríseyjar og 60 þorskígildistonn vegna Grímseyjar.
Í bréfinu er einnig vakin athygli á því að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 1. nóvember 2014.

Bæjarráð - 3435. fundur - 30.10.2014

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 20. október 2014 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem fram kemur að ráðuneytið hafi endurreiknað byggðakvóta til allra sveitarfélaga á grundvelli breyttra gagna frá Fiskistofu. Úthlutaður byggðakvóti fiskveiðiársins 2014/2015 er nú 47 þorskígildistonn fyrir Grímsey og 158 þorskígildistonn fyrir Hrísey.