Bæjarráð

3432. fundur 16. október 2014 kl. 09:00 - 12:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.Rekstur - staða mála - embættismenn

Málsnúmer 2014090001Vakta málsnúmer

Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss, Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og fóru yfir rekstrarstöðu og horfur í málaflokknum.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2015 - stoðþjónustudeildir

Málsnúmer 2014060172Vakta málsnúmer

Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss, Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri, Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið og fóru yfir fjárhagsáætlun stoðþjónustudeilda.

3.Bæjarsjóður - yfirlit um rekstur 2014

Málsnúmer 2014050012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til ágúst 2014.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Fjárhagsáætlun 2015 - íþróttaráð - gjaldskrá Hlíðarfjalls

Málsnúmer 2014080009Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá Hlíðarfjalls veturinn 2014-2015.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

5.Hestamannafélagið Léttir - Landsmót hestamanna 2020 eða 2022

Málsnúmer 2014100021Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 17. september 2014 frá Andreu Þorvaldsdóttur f.h. Hestamannafélagsins Léttis þar sem óskað er eftir stuðningi bæjaryfirvalda vegna væntanlegrar umsóknar félagsins um að halda Landsmót hestamanna árið 2020 eða 2022.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.

Logi Már Einarsson S-lista vék af fundi kl. 11:20.

6.Byggðakvóti handa Hrísey og Grímsey - fiskveiðiárið 2014/2015 - úthlutun

Málsnúmer 2014090067Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 9. október 2014 frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutaðan byggðakvóta fiskveiðiársins 2014/2015, 158 þorskígildistonn vegna Hríseyjar og 60 þorskígildistonn vegna Grímseyjar.
Í bréfinu er einnig vakin athygli á því að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðalaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 1. nóvember 2014.

7.Hverfisnefnd Naustahverfis - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014010033Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 61. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dagsett 30. september 2014. Fundargerðin er í 4 liðum.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/naustahverfi/fundargerdir

Bæjarráð vísar 1. og 2. lið til framkvæmdadeildar.

3. og 4. liður lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

8.Eyþing - aðalfundur 2014 - ályktanir

Málsnúmer 2014070183Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar ályktanir aðalfundar Eyþings sem haldinn var á Narfastöðum 3. og 4. október sl.

9.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014010020Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 820. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 8. október 2014. Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.samband.is/um-okkur/fundargerdir-stjornar/searchmeetings.aspx

10.Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri - styrkbeiðni

Málsnúmer 2014100098Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. október 2014 frá Maríu Jónsdóttur forstöðukonu Norrænu upplýsingaskrifstofunnar á Akureyri þar sem óskað er eftir ferðastyrk vegna ferðar ungs fólks á þing Norðurlandaráðs 2014.

Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000. Færist af styrkveitingum bæjarráðs.

11.Erlend samskipti - skipun í vinnuhóp

Málsnúmer 2014090064Vakta málsnúmer

Skipun í vinnuhóp um erlend samskipti.

Bæjarráð skipar Loga Má Einarsson, Silju Dögg Baldursdóttur, Njál Trausta Friðbertsson og Margréti Kristínu Helgadóttur í vinnuhópinn.

Fundi slitið - kl. 12:00.