Íþróttaráð

104. fundur 26. janúar 2012 kl. 14:00 - 15:55 Fundarherbergi á 3. hæð í Rósenborg
Nefndarmenn
  • Nói Björnsson formaður
  • Þorvaldur Sigurðsson
  • Þóroddur Hjaltalín
  • Árni Óðinsson
  • Erlingur Kristjánsson
  • Anna Jenný Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Jóhann Gunnar Sigmarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Rekstrarsamningar aðildarfélaga ÍBA - endurnýjun 2012

Málsnúmer 2011110002Vakta málsnúmer

Lagður fram rekstrarsamningur við Skíðafélag Akureyrar 2012-2014 ásamt viðaukasamningi.

Íþróttaráð samþykkir framlagðan samning.

2.Siglingaklúbburinn Nökkvi - styrkbeiðni vegna aðstöðumála

Málsnúmer 2012010227Vakta málsnúmer

Erindi dags. 12. janúar 2012 frá Rúnari Þór Björnssyni f.h. Nökkva félags siglingamanna þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 250.000 til að setja upp bráðabirgðahúsnæði með sturtum og búningsaðstöðu.

Íþróttaráð samþykkir að veita Nökkva félagi siglingamanna styrk að upphæð kr. 250.000 til að setja upp bráðabirgðahúsnæði fyrir búningsaðstöðu með fyrirvara um að byggingarleyfi fáist.

3.Hjólabrettafélag Akureyrar

Málsnúmer 2011110058Vakta málsnúmer

Erindi dags. 12. janúar 2012 frá Hjólabrettafélagi Akureyrar þar sem farið er fram á styrk frá íþróttaráði að upphæð kr. 1.000.000 vegna húsaleigu fyrir æfingaaðstöðu.

Íþróttaráð samþykkir að veita Hjólabrettafélagi Akureyrar styrk að upphæð kr. 600.000.

4.Skautasvell í hverfum bæjarins

Málsnúmer 2011110070Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi frá Sigurði Aðils um skautasvell í hverfum bæjarins. Erindið var áður á dagskrá íþróttaráðs 12. janúar sl.

5.Forstöðumaður íþróttamála

Málsnúmer 2011120008Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar listi yfir umsækjendur um starf forstöðumanns íþróttamála en alls sóttu 42 um starfið.

Íþróttaráð fagnar því hversu margir hæfileikaríkir einstaklingar sýna starfinu áhuga.

Fundi slitið - kl. 15:55.