Framkvæmdaráð

333. fundur 09. ágúst 2016 kl. 17:15 - 20:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Jón Orri Guðjónsson
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar ritaði fundargerð
Dagskrá
Ingibjörg Ólöf Isaksen B- lista boðaði forföll og mætti Óskar Ingi Sigurðsson í hennar stað.
Njáll Trausti Friðbertsson D- lista boðaði forföll og mætti Jón Orri Guðjónsson í hans stað.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ- lista boðaði forföll og mætti Jón Þorvaldur Heiðarsson í hans stað.

1.SVA - nýtt leiðarkerfi 2016

Málsnúmer 2016050033Vakta málsnúmer

Farið yfir minnisblað Eflu verkfræðistofu, dagsett 8. júlí s.l. og rætt um kostnað vegna breytinganna og kynntar tillögur um merkingar á strætisvögnum

Rúna Ásmundsdóttir umferðarverkfræðingur frá Eflu kynnti nýjustu hugmyndir um nýtt leiðakerfi SVA.

Framkvæmdaráð leggur til að leiðakerfi verði breytt í september en aksturstími verði óbreyttur á þessu ári.

2.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2015080078Vakta málsnúmer

Farið yfir 6 mánaða stöðu fjárhagsáætlunar og framkvæmda á árinu 2016 og rætt um hagræðingartillögur einstakra málaflokka.

Ólafur Stefánsson, slökkviliðsstjóri SA mætti á fundinn undir þessum lið og kynnti tillögur að breyttri starfstilhögun innan slökkviliðsins sem mun leiða til sparnaðar.

Hugmyndin verði útfærð nánar og lögð aftur fyrir framkvæmdaráð.

Lagt fram til kynningar.

3.Drottningarbraut - framkvæmdir

Málsnúmer 2015110156Vakta málsnúmer

Bæjarráð hefur óskað eftir því við framkvæmdaráð að skoða tímabundna þrengingu á Glerárgötu og Þingvallastræti sem tilraunarverkefni, sbr. bókun 7. júlí s.l.
Lögð var fram til kynningar tillaga frá framkvæmdadeild um útfærslu. Tillaga að útfærslu Drottningarbrautar hefur verið send Vegagerð til umsagnar.

Ákveðið að kostnaðarmeta tillögurnar.

Fundi slitið - kl. 20:00.