Fræðsluráð

28. fundur 30. mars 2020 kl. 13:30 - 15:45 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri
  • Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Atli Þór Ragnarsson fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Anna Bergrós Arnarsdóttir mætti í forföllum Bryndísar Valgarðsdóttur fulltrúa grunnskólastjóra.

1.Húsnæði fyrir barnanáskeið Punktsins

Málsnúmer 2020030293Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. mars 2020 barst frá Kristni J. Reimarssyni sviðsstjóra samfélagssviðs með fyrirspurn um hvort nýta mætti skólahúsnæði grunnskólanna fyrir barnanámskeið Punktsins frá og með næsta hausti.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að kanna meðal skólastjóra hvort og þá hvernig hægt verði að verða við óskum um að barnanámskeið Punktsins flytjist í húsnæði grunnskólanna.

2.Skólavogin 2020

Málsnúmer 2020030391Vakta málsnúmer

Foreldrakönnun Skólavogarinnar 2020 fyrir grunnskólana lögð fram til kynningar og umræðu.
Heilt yfir koma niðurstöðurnar vel út fyrir grunnskóla Akureyrarbæjar. Fræðsluráð leggur áherslu á að skólarnir nýti sér niðurstöðurnar og að þær verði hluti af innra mati hvers skóla.

3.Viðbragðsáætlun og aðgerðir á fræðslusviði

Málsnúmer 2020030390Vakta málsnúmer

Farið var yfir áætlanir og aðgerðir á fræðslusviði vegna COVID-19 faraldurs.
Fræðsluráð vill þakka starfsfólki skólanna fyrir frábær störf í þeim aðstæðum sem nú eru uppi í samfélaginu. Ljóst er að verið er að setja velferð barna og framfarir í forgang og bera öll vinnubrögð þess merki að bjartsýni og vilji til að gera vel ræður för. Ykkar er heiðurinn að vel hefur tekist til.

Fundi slitið - kl. 15:45.