Húsnæði fyrir barnanáskeið Punktsins

Málsnúmer 2020030293

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 28. fundur - 30.03.2020

Erindi dagsett 10. mars 2020 barst frá Kristni J. Reimarssyni sviðsstjóra samfélagssviðs með fyrirspurn um hvort nýta mætti skólahúsnæði grunnskólanna fyrir barnanámskeið Punktsins frá og með næsta hausti.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að kanna meðal skólastjóra hvort og þá hvernig hægt verði að verða við óskum um að barnanámskeið Punktsins flytjist í húsnæði grunnskólanna.