Fræðsluráð

5. fundur 04. mars 2019 kl. 13:30 - 15:15 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Einar Gauti Helgason V-lista mætti í forföllum Þuríðar Sólveigar Árnadóttur.

Formaður fræðsluráðs leitaði afbrigða í upphafi fundar um að setja á dagskrá kynningu á stöðu vinnu við endurskoðun skólastefnu Akureyrarbæjar. Málið var ekki í útsendu fundarboði og verður 5. liður á dagskrá. Erindið samþykkt.

1.Eftirfylgd með kennslustundum í list- og verkgreinum

Málsnúmer 2019010099Vakta málsnúmer

Fræðsluráði barst erindi frá Menntamálastofnun dagsett 3. janúar 2019 þar sem óskað var eftir greinargerð um fjölda kennslustunda í list- og verkgreinum í grunnskólum Akureyrar. Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir málinu.
Fræðsluráð undirstrikar mikilvægi list- og verkgreinakennslu í skólum bæjarins. Í auknum mæli er farið að samþætta kennslugreinar og oft á tíðum flókið að skilgreina hversu mörgum mínútum er varið í hverja kennslugrein. Vinna hefst með skólastjórnendum grunnskóla Akureyrarbæjar nú á vordögum við að haga stundatöflugerð næsta skólaárs þannig að auðveldara verði að sjá hver er hlutur list- og verkgreina og að hann verði ekki lægri en lög gera ráð fyrir.

2.Vinna við stefnumótun í málefnum barna

Málsnúmer 2019020362Vakta málsnúmer

Bréf félags- og barnamálaráðherra vegna vinnu við stefnumótun í málefnum barna, dagsett 21. febrúar 2019, lagt fram til kynningar.

Stefnumótun í málefnum barna, endurskoðun á félagslegri umgjörð og þjónustu við börn á Íslandi stendur yfir í félagsmálaráðuneytinu. Á grundvelli samkomulags fimm ráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga var skipuð þverpólitísk þingmannanefnd í september 2018 sem falið var að ,,leggja til breytingar á lögum, reglugerðum eða á framkvæmd þjónustu, sem kunna að vera nauðsynlegar til að skapa heildarsýn í málefnum barna og þjónustu við þau."

3.Frumvarp til laga um rétt barna sem aðstandendur, 255 mál 2019

Málsnúmer 2019020357Vakta málsnúmer

Lagt fram til umsagnar erindi frá velferðarnefnd Alþingis dagsett 21. febrúar 2019 um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna réttar barna sem aðstandendur.

Lagðar eru skyldur á leik- og grunnskóla, sbr. kafla IV og V þar sem leik-/grunnskólabörnum, sem eiga langveikt eða deyjandi foreldri eða missa foreldri, skal tryggður viðeigandi stuðningur og ráðgjöf innan leik-/grunnskólans í samvinnu við heilbrigðisstofnun þar sem foreldrið er til meðferðar eða sem hefur móttekið tilkynningu um andlát foreldris og foreldra eða aðra þá sem annast barnið. Í frumvarpinu er tillaga gerð um lagabreytingar á leikskóla- og grunnskólalögum vegna þess.

4.Leikskólabygging við Glerárskóla

Málsnúmer 2017120010Vakta málsnúmer

Formaður fræðsluráðs gerði grein fyrir vinnu við leikskólabyggingu á Glerárskólareit.

Verið er að vinna við hönnun leikskólans og er skipulagsferlið hafið. Ráðgert er að skólinn verði tekinn í notkun árið 2021.

5.Endurskoðun skólastefnu 2018

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti vinnu við endurskoðun á skólastefnu Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 15:15.