Fræðsluráð

22. fundur 03. desember 2018 kl. 13:30 - 14:57 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Marsilía Dröfn Sigurðardóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Marsilía Dröfn Sigurðardóttir D-lista sat fundinn í forföllum Þórhalls Harðarsonar.
Ingunn Högnadóttir fulltrúi foreldra barna í leikskólum tilkynnti forföll.

1.Staðfesting á skólasókn

Málsnúmer 2018100121Vakta málsnúmer

Eitt af lögbundnum verkefnum fræðsluráðs sbr. 6. grein laga nr. 91/2008 um grunnskóla er ,,að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu."

Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar og Karl Frímannsson sviðsstjóri lögðu fram greinargerð um málið.
Öll skólaskyld börn með lögheimili á Akureyri njóta lögboðinnar fræðslu skv. lögum.

2.Búnaðarkaup fyrir skólana árin 2016-2020

Málsnúmer 2016030144Vakta málsnúmer

Forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar hvernig staðið er að úthlutun fjár til búnaðarkaupa í leik-, grunn- og tónlistarskóla.

3.Skólaval grunnskóla 2015-2020

Málsnúmer 2017010171Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslusviðs lagði fram tillögu að endurskoðun á núgildandi reglum um skólaval.

Fræðsluráð felur sviðsstjóra að ganga frá endanlegri tillögu að skólavali fyrir næsta fund.

4.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2019-2022

Málsnúmer 2018060289Vakta málsnúmer

Forstöðumaður rekstrar lagði fram til kynningar breytingar á fyrstu drögum að fjárhagsáætlun fræðslumála 2019-2022.

5.Sumarlokun leikskóla 2018-2020

Málsnúmer 2017100035Vakta málsnúmer

Bókun fræðsluráðs frá 9. október 2017 um sumarlokun í leikskólum var lögð fram til kynningar.
Sviðsstjóra er falið að undirbúa viðhorfskönnun meðal foreldra og starfsfólks í leikskólum vegna fyrirkomulags á sumarlokunum.

6.Leikskólabygging við Glerárskóla

Málsnúmer 2017120010Vakta málsnúmer

Formaður fræðsluráðs gerði grein fyrir stöðunni við hönnun leikskólabyggingar á Glerárskólareit. Ráðgert er að byggingin verði tekin í notkun haustið 2021.

Fundi slitið - kl. 14:57.