Fræðsluráð

14. fundur 02. ágúst 2018 kl. 13:30 - 15:30 Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá

1.Trúnaðaryfirlýsing bæjarfulltrúa, nefndamanna og áheyrnarfulltrúa 2018 - 2022

Málsnúmer 2018060368Vakta málsnúmer

Viðstaddir nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar undirrituðu trúnaðaryfirlýsingu.

2.Trúnaðaryfirlýsing starfsmanna ráða og nefnda 2018 - 2022

3.Íslenska sem annað mál - ársskýrsla 2017-2018

Málsnúmer 2014110199Vakta málsnúmer

Fjallað var um ársskýrslu 2017-2018 um þjónustu við börn með íslensku sem annað tungumál.

4.Brekkuskóli - hugmyndir frá nemendum

Málsnúmer 2018050294Vakta málsnúmer

Erindi, dagsett í maí 2018, frá nemendum í 7. og 8. bekk í Brekkuskóla þar sem þau koma á framfæri hugmyndum sínum um hvað ný bæjarstjórn gæti bætt fyrir krakka og unglinga á Akureyri á nýju kjörtímabili.
Fræðsluráð þakkar nemendum fyrir erindið.

5.Brekkuskóli - hljóðvist í matsal

Málsnúmer 2018030266Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. febrúar 2018 frá Stellu Gústafsdóttur f.h. Brekkuskóla þar sem óskað er eftir að gerðar verði úrbætur á matsal skólans vegna hljóðvistar.
Erindinu er vísað til fjárhagsáætlanagerðar fræðslusviðs 2019-2022.

6.Ósk um ráðningu verkefnisstjóra í Brekkuskóla

Málsnúmer 2018070570Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. febrúar frá Stellu Gústafsdóttur skólastjóra Brekkuskóla þar sem óskað er eftir heimild til að ráða verkefnisstjóra að skólanum.
Erindinu er vísað til fjárhagsáætlanagerðar fræðslusviðs 2019-2022.

7.Viðauki vegna málskostnaðar Lundarskóla

Málsnúmer 2018070574Vakta málsnúmer

Í framhaldi af dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra (nr. E-123/2016) frá 3. apríl 2018 í máli kennara við Lundarskóla liggur fyrir að heildarkostnaður Lundarskóla vegna málsins er kr. 7.038.051. Byggir sú upphæð á kröfuútreikningum, byggðum á bótakröfum og framlagðri matsgerð dómkvaddra matsmanna, málskostnaði og lögfræðikostnaði.
Málinu er vísað til 2. umræðu í fræðsluráði skv. verklagsreglum Akureyrarkaupstaðar.

8.Rekstur fræðslumála 2018

Málsnúmer 2018030030Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar fór yfir rekstur fræðslumála frá janúar til júní 2018.

9.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2019-2022

Málsnúmer 2018060289Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar fór yfir verkáætlun og stöðu fjárhagsáætlunargerðar fræðslusviðs 2019-2022.

Fundi slitið - kl. 15:30.