Trúnaðaryfirlýsing starfsmanna ráða og nefnda 2018-2022

Málsnúmer 2018060369

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3600. fundur - 21.06.2018

Lögð fram tillaga að texta í trúnaðaryfirlýsingu starfsmanna ráða og nefnda 2018-2022.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs og Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að kalla eftir undirrituðum trúnaðaryfirlýsingum starfsmanna ráða og nefnda.



Gunnar Gíslason D-lista situr hjá við afgreiðslu og leggur fram svohljóðandi bókun:

Ég tel enga ástæðu til að vottar staðfesti undirritun, sem í raun flækir málið svo að það verður ekki undirritað rafrænt.

Skipulagsráð - 294. fundur - 27.06.2018

Trúnaðaryfirlýsingar starfsmanna skipulagsráðs lagðar fram og undirritaðar.