Fræðsluráð

7. fundur 05. mars 2018 kl. 13:30 - 15:45 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Þórhallur Harðarson
  • Guðmundur H Sigurðarson
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá

1.Kynning á nýjum verkefnum Tónlistarskólans

Málsnúmer 2018030032Vakta málsnúmer

Hjörleifur Örn Jónsson skólastjóri Tónlistarskólans kynnti samstarfsverkefni skólans sem verið er að vinna að.
Fræðsluráð þakkar fyrir fróðlegt erindi og lýsir ánægju sinni með hvernig til hefur tekist.

2.Langtímaáætlun fræðslumála 2018-2027

Málsnúmer 2017050029Vakta málsnúmer

Formaður fræðsluráðs fór yfir stöðu verkefnisins og forsendur auk þess sem rekstrarstjóri kynnti töluleg gögn.
Gert er ráð fyrir að langtímaáætlunin verði afgreidd á fundi fræðsluráðs 19. mars 2018.

Dagný Þóra Baldursdóttir vék af fundi kl. 14:50.

3.Búnaðarkaup 2018

Málsnúmer 2016030144Vakta málsnúmer

Fyrir fundinn var lögð tillaga að búnaðarkaupum leik-, grunn- og tónlistarskóla fyrir árið 2018.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og greiðslu á lausafjárleigu vegna kaupanna og vísar afgreiðslunni til umhverfis- og mannvirkjasviðs.

4.Ungmennaráð - starfsemi

Málsnúmer 2011030133Vakta málsnúmer

Samþykkt fyrir ungmennaráð frá 4. apríl 2017 lögð fram til kynningar.

Fræðsluráð fagnar því að fulltrúa úr ungmennaráði verði veitt heimild til að sitja sem áheyrnarfulltrúi á fundum fræðsluráðs og samþykkir þá ráðstöfun fyrir sitt leyti.

5.Rekstur fræðslumála 2018

Málsnúmer 2018030030Vakta málsnúmer

Staða málflokksins í janúar 2018 lögð fram til kynningar.
Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar fræðslusviðs fór yfir rekstur fræðslumála í janúar 2018.

Fundi slitið - kl. 15:45.