Fræðsluráð

8. fundur 08. maí 2017 kl. 13:30 - 16:02 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Baldvin Valdemarsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Anna María Hjálmarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Siguróli Magni Sigurðsson B-lista boðaði forföll sem og varamaður hans.

1.Skólaþjónusta

Málsnúmer 2017050011Vakta málsnúmer

Helga Vilhjálmsdóttir forstöðumaður skólaþjónustu kom á fundinn og kynnti helstu verkefni skólaþjónustunnar og stöðu í málaflokknum.
Fræðsluráð þakkar Helgu fyrir greinargóða kynningu.

2.Giljaskóli - sérdeild

Málsnúmer 2017050056Vakta málsnúmer

Jón Baldvin Hannesson skólastjóri Giljaskóla og Ragnhildur Júlíusdóttir forstöðumaður sérdeildar Giljaskóla mættu á fundinn og sögðu frá þjónustu sérdeildar.
Fræðsluráð þakkar þeim Jóni Baldvin og Ragnheiði fyrir greinargóða kynningu á starfseminni.

3.Vegvísir við bókun í kjarasamningi grunnskólakennara

Málsnúmer 2017010222Vakta málsnúmer

Kristrún Lind Birgisdóttir verkefnisstjóri kom á fundinn og fór yfir stöðu á vinnu við Bókun I.
Fræðsluráð þakkar Kristrúnu fyrir kynninguna.

4.Fjárhagsáætlun fræðslumála 2017-2023

Málsnúmer 2017050044Vakta málsnúmer

Bæjarráð hefur samþykkt fjárhagsáætlunarferli fyrir áætlun næsta árs.

Lagt fram til kynningar.

5.Kennslustundaúthlutun til grunnskóla

Málsnúmer 2017030172Vakta málsnúmer

Ljóst er að þörf er fyrir aukningu í kennslustundaúthlutun frá og með hausti 2017. Ástæðan er aukið mat á sérkennsluþörf og fjölgun nemenda.

Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á fræðslusviði gerði grein fyrir í hverju þörfin er fólgin og fór yfir meðfylgjandi minnisblað.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs og forstöðumanni reksturs fræðslusviðs að ganga frá tillögu um viðauka út frá fyrirliggjandi forsendum til að leggja fyrir fræðsluráð á næsta fundi.

6.Langtímaáætlun fræðslumála 2018-2027

Málsnúmer 2017050029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar og endurskoðunar fyrri 10 ára áætlun sem samþykkt var í skólanefnd 18. nóvember 2013.
Fræðsluráð vísar málinu til vinnufundar með kjörnum fulltrúum sem haldinn verður á milli reglubundinna funda.

Fundi slitið - kl. 16:02.