Fræðslu- og lýðheilsuráð

42. fundur 27. nóvember 2023 kl. 13:00 - 16:00 Lundarskóli
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Rannveig Elíasdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristín Jóhannesdóttir sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála
  • Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir verkefnastjóri grunnskóla
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu
Dagskrá
Tinna Guðmundsdóttur F-lista boðaði forföll sem og varamaður hennar.

1.Heimsóknir í skóla 2023

Málsnúmer 2023050652Vakta málsnúmer

Björg Sigurvinsdóttir leikskólastjóri Lundarsels, Helga María Þórarinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Lundarsels og Maríanna Ragnarsdóttir skólastjóri Lundarskóla tóku á móti fræðslu- og lýðheilsuráði og sögðu frá starfsemi skólanna.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar þeim Björgu, Helgu Maríu og Maríönnu fyrir kynninguna.

2.Ósk um breytingu á skóladagatali

Málsnúmer 2023040666Vakta málsnúmer

Brekkuskóli óskar eftir að fá að breyta skóladagatali skólans fyrir skólaárið 2023-2024 vegna fyrirhugaðrar námsferðar starfsfólks. Breytingin felst í að færa tvo skipulagsdaga, 22. janúar og 15. apríl, til 5. og 6. júní 2024.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu og lýðheilsuráð samþykkir breytingu á skóladagatali Brekkuskóla.

3.Reglur um afslátt af leikskóla- og frístundagjöldum

Málsnúmer 2023111010Vakta málsnúmer

Reglur um afslátt af leikskóla- og frístundagjöldum lagðar fram til samþykktar.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir reglur um afslátt af leikskóla- og frístundagjöldum með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum fyrir sitt leyti og vísar þeim áfram til bæjarráðs.

4.Starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023

Málsnúmer 2022080363Vakta málsnúmer

Starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs fyrir árið 2024 lögð fram til samþykktar.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir starfsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs fyrir árið 2024.

5.Knattspyrnufélag Akureyrar - samkomulag vegna stofnun fimleikadeildar KA

Málsnúmer 2023110963Vakta málsnúmer

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála kynnti drög að samkomulagi milli Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar varðandi framlög til félagsins vegna fyrirhugaðar stofnunar á fimleikadeild KA um næstu mánaðamót.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir samkomulagið fyrir sitt leyti og vísar því til bæjarráðs.

6.Íþróttafélagið Þór - beiðni um viðræður

Málsnúmer 2023031752Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 28. mars 2023 frá Reimari Helgasyni framkvæmdastjóra Þórs varðandi viðræður við Akureyrarbæ um framtíðaruppbyggingu og skipulag á Þórssvæðinu.


Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir fulltrúi ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð felur sviðsstjóra að óska eftir tilnefningum í starfshópinn og kynna fyrir ráðinu á næsta fundi.

7.Barnvænt sveitarfélag - gátlistar

Málsnúmer 2023091180Vakta málsnúmer

Lagt fram barnvænt hagsmunamat fundarins.


Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar dagskrárlið 5 og 6 til kynningar hjá ungmennaráði Akureyrarbæjar og býður ráðinu að tilnefna fulltrúa í starfshóp vegna dagskrárliðar 6.

Fundi slitið - kl. 16:00.