Félagsmálaráð

1178. fundur 22. janúar 2014 kl. 14:00 - 16:55 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagur Fannar Dagsson formaður
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Valur Sæmundsson
  • Guðlaug Kristinsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Valdís Anna Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri
  • Karl Guðmundsson framkvæmdastjóri
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti í forföllum Sifjar Sigurðardóttur.

1.Fjárhagsaðstoð 2014 - breyting á framfærslugrunni

Málsnúmer 2014010188Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldudeild sátu fundinn undir þessum lið. Lagt var fram minnisblað Guðrúnar Sigurðardóttur dags. 16. janúar 2014 um breytingu á framfærslugrunni í fjárhagsaðstoð.

Félagsmálaráð samþykkir að hækka framfærslugrunn fjárhagsaðstoðar um 4,15% í samræmi við hækkun neysluvísitölu frá desember 2012 til desember 2013. Málinu vísað til bæjarráðs.

2.Reglur félagsmálaráðs Akureyrar um fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 2010010047Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri á fjölskyldudeild kynntu drög að breytingum á reglum félagsmálaráðs um fjárhagsaðstoð.

Félagsmálaráð samþykkir breyttar reglur með athugasemdum sem gerðar voru á fundinum og vísar málinu til bæjarstjórnar.

3.Búsetudeild - áfrýjanir 2014

Málsnúmer 2014010230Vakta málsnúmer

Lögð fram áfrýjun vegna synjunar á félagslegri heimaþjónustu, mál nr. 2013120010.
Bergdís Ösp Bjarkadóttir, forstöðumaður heimaþjónustu A lagði fram greinargerð búsetudeildar.

Áfrýjun og afgreiðsla málsins er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

4.Víðilundur - dagþjónusta

Málsnúmer 2013100063Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti að dagþjónustunni í Víðilundi hefðu borist gjafir, vaxpottur og grjónapúðar að upphæð 120 þúsund kr. frá Kvenfélaginu Baugi í Grímsey. Gjafirnar nýtast vel fyrir gesti staðarins.
Félagsmálaráð þakkar Kvenfélaginu Baugi góðar gjafir.

5.NPA - samningar

Málsnúmer 2008100045Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynntu drög að NPA samningi.

Afgreiðsla málsins er færð í trúnaðarbók félagsmálaráðs.

6.Öldrunarrými - biðlisti 2014

Málsnúmer 2014010199Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

7.ÖA - velferð og tækni, velferðartækni

Málsnúmer 2013010215Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dags. 17.janúar 2014 þar sem lýst er þátttöku ÖA í undirbúningi og umfjöllun um velferðartækni. Velferðarráðuneytið hefur skipað starfshóp til að undirbúa stefnumörkun í velferðartækni í félagsþjónustu og er framkvæmdastjóri ÖA skipaður í hópinn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Jafnframt er greint frá að í undirbúningi sé ráðstefna um velferðartækni og nýsköpun, sem haldin verði á Akureyri dagana 5. og 6. júní 2014.
Lagt fram til kynningar.

8.Langtímaáætlun - búsetudeild

Málsnúmer 2013010300Vakta málsnúmer

Langtímaáætlun búsetudeildar lögð fram

Félagsmálaráð þakkar kynninguna.

Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista vék af fundi kl. 16:00.

Fundi slitið - kl. 16:55.