Víðilundur - dagþjónusta

Málsnúmer 2013100063

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1172. fundur - 09.10.2013

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður þjónustumiðstöðva í Víðilundi og Bugðusíðu sagði frá gjöf til dagþjónustunnar í Víðilundi.

Félagsmálaráð þakkar rausnarlega gjöf til Þjónustumiðstöðvar í Víðilundi frá aðila sem ekki vill láta nafns síns getið.

Félagsmálaráð - 1178. fundur - 22.01.2014

Soffía Lárusdóttir, framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti að dagþjónustunni í Víðilundi hefðu borist gjafir, vaxpottur og grjónapúðar að upphæð 120 þúsund kr. frá Kvenfélaginu Baugi í Grímsey. Gjafirnar nýtast vel fyrir gesti staðarins.
Félagsmálaráð þakkar Kvenfélaginu Baugi góðar gjafir.