Félagsmálaráð

1137. fundur 11. janúar 2012 kl. 14:00 - 17:30 Fundarsalur á 4. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Inda Björk Gunnarsdóttir formaður
  • Dagur Fannar Dagsson
  • Jóhann Ásmundsson
  • Oktavía Jóhannesdóttir
  • Sif Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsaðstoð 2011

Málsnúmer 2011010143Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri lögðu fram yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð á árinu 2011. Heildarútgjöld til fjárhagsaðstoðar voru á árinu 2011 kr. 112.020.348 og hækkun á milli ára var 31.6%.

2.Reglur félagsmálaráðs Akureyrar um fjárhagsaðstoð

Málsnúmer 2010010047Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri kynntu drög að breytingum á reglum félagsmálaráðs um fjárhagsaðstoð.

Félagsmálaráð samþykkir breyttar reglur með athugasemdum sem gerðar voru á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.

3.Fjárhagsaðstoð 2012 - breyting á framfærslugrunni

Málsnúmer 2012010023Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Lagt var fram minnisblað Guðrúnar Sigurðardóttur dags. 5. janúar 2012 um breytingu á framfærslugrunni í fjárhagsaðstoð.

Félagsmálaráð samþykkir að hækka framfærslugrunn fjárhagsaðstoðar um 5.26% í samræmi við hækkun neysluvísitölu frá desember 2010 til desember 2011. Málinu vísað til bæjarráðs.

4.Fjárhagsaðstoð 2012 - 24. gr. reglna

Málsnúmer 2012010022Vakta málsnúmer

Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar, Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri og Ester Lára Magnúsdóttir verkefnastjóri sátu fundinn undir þessum lið.
Lagt var fram minnisblað Esterar Láru Magnúsdóttur, um námsstyrki skv. 24. gr. reglna félagsmálaráðs Akureyrar um fjárhagsaðstoð.

Félagsmálaráð samþykkir að fella niður hámarks upphæð sem ætluð er til námsstyrkja skv. 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð.

5.Búsetudeild - gjaldskrár 2012

Málsnúmer 2011120048Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram breytingu á tekjumörkum í gjaldskrá fyrir heimaþjónustu Akureyrarbæjar 2012.

Félagsmálaráð samþykkir hækkun á tekjumörkum fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarráðs.

6.Félagsleg liðveisla - 2012

Málsnúmer 2012010113Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmastjóri búsetudeildar og Hlynur Már Erlingsson verkefnastjóri lögðu fram samning við Sundfélagið Óðinn um félagslega liðveislu.

Félagsmálaráð samþykkir samninginn við Sundfélagið Óðinn og lýsir yfir ánægju með frumkvæði félagsins við að gefa fötluðum ungmennum kost á að stunda íþróttir á Akureyri.

7.Lautin 2012

Málsnúmer 2012010115Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar lagði fram rekstrarsamning um dagsathvarf fyrir einstaklinga með geðraskanir árið 2012-2013.

Félagsmálaráð samþykkir saminginn fyrir sitt leyti með breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar honum til bæjarráðs.

8.Öldrunarheimili Akureyrar - að efla áhuga á störfum á ÖA og fjölga fagfólki

Málsnúmer 2012010095Vakta málsnúmer

Samkvæmt mannfjöldaspám mun öldruðum fjölga í framtíðinni, aldraðir munu lifa lengur með fjölþætta sjúkdóma. Fyrirséð er að erfitt getur orðið að fá starfsfólk til starfa í öldrunarþjónustu í framtíðinni. Samkvæmt starfsáætlun 2011-2014 skal skipa starfshóp sem gerir áætlun um aðgerðir til þess að gera störf á ÖA sýnileg og áhugaverð. Einnig verði gerð áætlun um átak til þess að fjölga fagfólki.
Starfshópur skili tillögum fyrir árslok 2012.

Félagsmálaráð skipar Dag Fannar Dagsson og Jóhann Ásmundsson í vinnuhóp til þess að vinna aðgerðaráætlun til að gera störf á ÖA sýnilegri og áhugaverðari og að fjölga fagfólki. Framkvæmdastjóra ÖA er falið að leita eftir tilnefningum annarra aðila í vinnuhópinn.

9.Öldrunarheimili Akureyrar - áætlun um þróun þjónusturýma

Málsnúmer 2012010094Vakta málsnúmer

Samkvæmt starfsáætlun 2011-2014 skal skipa starfshóp sem gerir áætlun um þróun þjónusturýma á ÖA, þ.e. áætlaðan fjölda hjúkrunar-, dvalar-, skammtíma- og dagvistarrýma og staðsetningu þeirra, sem og áætlun um nýbyggingar í stað úreltra rýma á ÖA. Starfshópur skal skila tillögum til félagsmálaráðs fyrir 1. júní 2012.

Félagsmálaráð skipar Indu Björk Gunnarsdóttur og Oktavíu Jóhannesdóttur sem fulltrúa sína í starfshóp til þess að gera áætlun um þróun þjónusturýma hjá ÖA.

10.Velferðarstefna 2010-2014

Málsnúmer 2012010098Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð skipaði stýrihóp fyrir vinnu að Velferðarstefnu Akureyrarbæjar. Starfshópurinn á að skila af sér áætlun um vinnslu stefnunnar í apríl 2012.

Félagsmálaráð skipar Indu Björk Gunnarsdóttur og Oktavíu Jóhannesdóttur sem fulltrúa sína í starfshóp um velferðarstefnu ásamt embættismönnum ráðsins. Ráðið skipar jafnframt Indu Björk Gunnarsdóttur sem formann hópsins.

Fundi slitið - kl. 17:30.