Bæjarstjórn

3336. fundur 05. mars 2013 kl. 16:00 - 16:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson 1. varaforseti
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Víðir Benediktsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Ólafur Jónsson
  • Ragnar Sverrisson
  • Sigurður Guðmundsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Ragnar Sverrisson S-lista mætti í forföllum Loga Más Einarssonar.
Víðir Benediktsson L-lista mætti í forföllum Geirs Kristins Aðalsteinssonar.

1.Hringteigur 2, VMA - umsókn um deiliskipulag

Málsnúmer 2012121230Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 27. febrúar 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að skipulagslýsingu vegna deiliskipulags lóðar Verkmenntaskólans á Akureyri. Tillagan er dags. 22. febrúar 2013 og unnin af Ómari Ívarssyni hjá Landslagi ehf.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um skipulagslýsinguna.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2013

Málsnúmer 2013020261Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 28. febrúar 2013:
Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð EUR 977.777.
Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða lántöku að upphæð EUR 977.777 og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Lögð fram tillaga að bókun bæjarstjórnar vegna lántökunnar svohljóðandi:  Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð EUR 977.777 til 5 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir sveitarfélagsins, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lánið er af endurlánafé frá Þróunarbanka Evrópuráðsins og skuldbindur lántaki sig til að veita upplýsingar um þau verkefni sem fjármögnuð eru skv. Viðauka III í lánssamningi en þau þurfa að rúmast innan skilyrða Þróunarbankans sbr. Viðauka II í lánssamningi. Jafnframt er Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Vinnsla á metangasi til eldsneytisnotkunar

Málsnúmer 2013020063Vakta málsnúmer

Umræður fóru fram um fyrirhugaða vinnslu á metangasi til eldsneytisnotkunar á sorpurðunarstað á Glerárdal.

 

4.Launakönnun 2012 unnin af RHA

Málsnúmer 2012110023Vakta málsnúmer

Umræður fóru fram um niðurstöður launakönnunar sem gerð var í nóvember 2012 hjá Akureyrarbæ.

5.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 20. og 27. febrúar 2013
Bæjarráð 20., 21., 26. og 28. febrúar 2013
Félagsmálaráð 27. febrúar 2013
Framkvæmdaráð 15. febrúar 2013
Íþróttaráð 21. febrúar 2013
Kjarasamninganefnd 20. febrúar 2013
Samfélags- og

Fundi slitið - kl. 16:50.