Lánasjóður sveitarfélaga - lántaka 2013

Málsnúmer 2013020261

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3354. fundur - 28.02.2013

Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð EUR 977.777.

Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða lántöku að upphæð EUR 977.777 og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 3336. fundur - 05.03.2013

2. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 28. febrúar 2013:
Fjármálastjóri kynnti fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf að upphæð EUR 977.777.
Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða lántöku að upphæð EUR 977.777 og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Lögð fram tillaga að bókun bæjarstjórnar vegna lántökunnar svohljóðandi:  Bæjarstjórn Akureyrar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð EUR 977.777 til 5 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna framkvæmdir sveitarfélagsins, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lánið er af endurlánafé frá Þróunarbanka Evrópuráðsins og skuldbindur lántaki sig til að veita upplýsingar um þau verkefni sem fjármögnuð eru skv. Viðauka III í lánssamningi en þau þurfa að rúmast innan skilyrða Þróunarbankans sbr. Viðauka II í lánssamningi. Jafnframt er Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Akureyrarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.