Bæjarstjórn

3334. fundur 05. febrúar 2013 kl. 16:00 - 18:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Logi Már Einarsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti í forföllum Sigurðar Guðmundssonar og Njáll Trausti Friðbertsson D-lista mætti í forföllum Ólafs Jónssonar.



Í upphafi fundar minntist forseti fyrrverandi bæjarfulltrúa.

Þorvaldur Jónsson fyrrverandi bæjarfulltrúi lést fimmtudaginn 24. janúar sl. 86 ára a

1.Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018, breyting á íbúðar- og stofnanasvæði í Giljahverfi

Málsnúmer 2012100018Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 16. janúar 2013:
Skipulagslýsing var kynnt með auglýsingu í Dagskránni þann 17. október 2012. Lýsingin var aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar og í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar.
Þrjár umsagnir vegna skipulagslýsingarinnar bárust:
1) Skipulagsstofnun, dags. 26. október 2012.
Ekki eru gerðar athugasemdir við skipulagslýsinguna. Bent er á að í breytingartillögunni þarf að gera grein fyrir þéttleika og yfirbragði byggðar og aðkomu að nýju lóðunum. Minnt er á að gera þarf grein fyrir áhrifum á umhverfið.
2) Umhverfisstofnun, dags. 30. október 2012.
Í tillögunni ættu að koma fram upplýsingar um hljóðmengun og varnir. Einnig ætti að gera grein fyrir hvernig svæðið hefur nýst og hvert sú notkun færist.
3) Norðurorka, dags. 6. nóvember 2012.
Athygli er vakin á mörgum lögnum samsíða Borgarbraut. Fyrirtækið áskilur sér rétt til að gera athugasemdir við deiliskipulagið þegar þar að kemur með tilliti til kostnaðar af verkinu o.fl.
Aðalskipulagsbreytingin var kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga með auglýsingu í Dagskránni 31. október 2012 og var tillagan aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar.
Aðalskipulagsbreytingin var auglýst í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga þann 28. nóvember 2012 með athugasemdafresti til 9. janúar 2013. Auglýsingar birtust í Lögbirtingablaðinu, Dagskránni og Fréttablaðinu. Tillagan var aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar Akureyrar, í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og hjá Skipulagsstofnun.
Umsagnir bárust frá:
Skipulagsstofnun, bréf dags. 17. janúar 2013 (barst eftir afgreiðslu skipulagsnefndar) þar sem ekki er gerð athugasemd við umhverfisskýrslu.
Umhverfisstofnun, bréf dags. 14. janúar 2013 þar sem ekki er gerð athugasemd við breytingartillöguna.
Engin athugasemd barst á auglýsingartíma.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Aðalskipulag Akureyrar 2005-2018, athafna-, verslunar- og þjónustusvæði við Miðhúsabraut/Súluveg, skipulagslýsing

Málsnúmer 2012110148Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 16. janúar 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram skipulagslýsingu fyrir athafna-, verslunar- og þjónustusvæði við Miðhúsabraut-Súluveg, dags. í janúar 2013 og unna af Árna Ólafssyni arkitekt hjá Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf.
Skipulagslýsingin gildir bæði fyrir aðalskipulagsbreytingu svæðisins, sjá málsnr. 2012110148 og deiliskipulag svæðisins, sjá málsnr. 2012070028.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um skipulagslýsinguna.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Brekkuskóli og nágrenni - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2012050138Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 16. janúar 2013:
Heildarendurskoðun á deiliskipulagi svæðis Brekkuskóla, Sundlaugar, Íþróttahallar og Vaxtarræktar var auglýst frá 12. september til 24. október 2012.
32 athugasemdir bárust og eru 29 af þeim samhljóða. Útdráttur úr innsendum athugasemdum er í meðfylgjandi skjali merktu "Brekkuskóli-athugasemdir og svör dags. 16.01 2013".
Tillögur dags. 7. desember 2012 frá Formi ehf, sem samþykktar voru 12. desember sl. um leiðir til að tryggja enn frekar öryggi barna sem leið eiga um svæðið hafa verið innfærðar inn á uppdrátt. Að öðru leyti er vísað í tillögurnar vegna nánari útfærslu.
Skipulagsnefnd tekur tillit til hluta athugasemdanna. Sjá nánar svör við athugasemdum í meðfylgjandi skjali merktu "Brekkuskóli-athugasemdir og svör dags. 16.01 2013".
Edward H. Huijbens V-lista óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðsluna og ítrekar fyrri bókun.
Meirihluti skipulagsnefndar leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan þannig breytt verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu meirihluta skipulagsnefndar með 9 samhljóða atkvæðum.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista og Logi Már Einarsson S-lista sátu hjá við afgreiðslu.

4.Fjaran og Innbærinn - deiliskipulagsbreyting - Aðalstræti 4

Málsnúmer 2013010001Vakta málsnúmer

10. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 16. janúar 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Fjörunnar og Innbæjarins vegna leiðréttingar á deiliskipulagsuppdrætti til samræmis við viðauka í greinargerð um fjölda íbúða. Einnig er gerð tillaga um fjögur bílastæði innan lóðar.
Tillagan er unnin af Loga Má Einarssyni frá Kollgátu ehf og er dags. 16. janúar 2013.
Einungis er um að ræða leiðréttingu á deiliskipulagsuppdrætti auk fjölgunar bílastæða innan lóðar, þannig að samræmi verði í upplýsingum um fjölda íbúða sbr. viðauka í greinargerð deiliskipulagsins og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa.
Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið, 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Logi Már Einarsson S-lista á því athygli að hann teldi  sig vanhæfan að fjalla um þennan lið.

Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir bæjarstjórn og var það samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum.

Logi már Einarsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

 

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 10 samhljóða atkvæðum.

5.Giljahverfi - deiliskipulagsbreyting - Urðargil 22 - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2012020108Vakta málsnúmer

14. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 16. janúar 2013:
Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Giljahverfis vegna stækkunar lóðar Urðargils 22 um 5 m til suðvesturs til samræmis við lóðarstækkun Urðargils 20 og 24. Tillagan er unnin af Ágústi Hafsteinssyni frá Formi ehf og er dags. 9. janúar 2013.
Einungis er um að ræða lítilsháttar stækkun lóðar til suðvesturs í samræmi við lóðir við Urðargil 20 og 24 og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa.
Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið, 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Giljahverfi, þjónustuíbúðir við Borgarbraut - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2012100043Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 30. janúar 2013:
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Giljahverfis var auglýst frá 28. nóvember 2012 til 9. janúar 2013. Samhliða var auglýst umhverfisskýrsla dags. í október 2012 og minnisblað um hljóðvist við Borgarbraut frá Eflu dags. 31. október 2012 auk breytingarblaðs um deiliskipulag Borgarbrautar-Vestursíðu dags. 27. október 2012.
Auglýsingar birtust í Dagskránni, Fréttablaðinu og Lögbirtingablaðinu auk þess sem gögnin voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar, í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og hjá Skipulagsstofnun.
Eftir auglýsingartíma var lögð fram endurskoðuð hljóðskýrsla frá Eflu dags. 24. janúar 2013 vegna rangra niðurstaðna þar sem skýrslan hafði verið byggð á röngum forsendum um umferðartölur ofl. Í framhaldinu voru gerðar viðeigandi leiðréttingar á umhverfisskýrslu, dags. í janúar 2013.
8 athugasemdir bárust og er útdráttur úr þeim í fylgiskjali merktu "Giljahverfi, þjónustuíbúðir við Borgarbraut, athugasemdir og svör dags. 30.1.2013". Þar er einnig að finna innkomnar umsagnir.
Borist hefur tillaga frá nafnanefnd dags. 11. janúar þar sem nefndin gerir það að tillögu sinni að lóðin og aðkoma hennar verði kennd við Borgarbraut og Giljahverfi og fái nafnið Borgargil.
Svör við athugasemdum koma fram í meðfylgjandi skjali merktu "Giljahverfi, þjónustuíbúðir við Borgarbraut, athugasemdir og svör dags. 30.1.2013".
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan og nafn lóðaraðkomunnar verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Fundargerðir á heimasíðu Akureyrarbæjar - fylgigögn

Málsnúmer 2012121174Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 31. janúar 2013:
Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 10. janúar sl. Lögð fram drög dags. 28. janúar 2013 að verklagsreglum um birtingu gagna með fundargerðum á vef Akureyrarbæjar.
Bæjarráð samþykkir drögin með þeim breytingum sem fram komu á fundinum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir verklagsreglur um birtingu gagna með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Breyting á reglum um sérstakar húsaleigubætur

Málsnúmer 2012121242Vakta málsnúmer

13. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 31. janúar 2013:
Lögð fram tillaga um breytingu á reglum um sérstakar húsaleigubætur á Akureyri.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu um breytingu á reglum um sérstakar húsaleigubætur á Akureyri með 11 samhljóða atkvæðum.

9.Fjárhagsáætlun 2013 - fræðslu- og uppeldismál

Málsnúmer 2013010191Vakta málsnúmer

17. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 31. janúar 2013:
1. liður í fundargerð skólanefndar dags. 21. janúar 2013:
Breyting á samþykktri gjaldskrá fyrir dagforeldra vegna mistaka í útreikningum.
Skólanefnd staðfestir leiðrétta gjaldskrá fyrir dagforeldra sem hækkar um 4,1% frá og með 1. mars 2013 samkvæmt samningsbundnum ákvæðum í kjarasamningi Einingar-Iðju.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða breytingu á gjaldskrá með  11 samhljóða atkvæðum.

10.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra 16., 23. og 29. janúar 2013
Bæjarráð 17., 29. og 31. janúar 2013
Félagsmálaráð 23. janúar 2013
Framkvæmdaráð 18. janúar 2013
Íþróttaráð 17. janúar 2013
Samfélags- og mannréttindaráð 21. janúar 2013
Skipulag

Fundi slitið - kl. 18:00.