Bæjarstjórn

3464. fundur 03. desember 2019 kl. 16:00 - 18:22 Hamrar í Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir forseti bæjarstjórnar
  • Andri Teitsson
  • Hlynur Jóhannsson
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Heimir Haraldsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Berglind Ósk Guðmundsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Þórhallur Jónsson
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista mætti í forföllum Evu Hrundar Einarsdóttur.

Í upphafi fundar leitaði forseti afbrigða til að taka á dagskrá málið 2018060500 - Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022 sem verði fyrsti liður á dagskrá. Var það samþykkt.

1.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan fulltrúa í stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs.:

Þórhallur Jónsson bæjarfulltrúi verði aðalfulltrúi í stað Evu Hrundar Einarsdóttur bæjarfulltrúa.
Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019 - viðauki

Málsnúmer 2018050147Vakta málsnúmer

Liður 2 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 28. nóvember 2019:

Lagður fram viðauki 10.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka með 5 samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti efni viðaukans.
Bæjarstjórn staðfestir ákvörðun bæjarráðs með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Reglur um notkun á merki Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2019110419Vakta málsnúmer

Liður 6 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 28. nóvember 2019:

Lögð fram drög að reglum um notkun á merki Akureyrarbæjar.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með 5 samhljóða atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti drögin.
Bæjarstjórn samþykkir reglur um notkun á merki Akureyrarbæjar með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Hönnunarstaðall Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018100303Vakta málsnúmer

Liður 7 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 28. nóvember 2019:

Lögð fram tillaga að hönnunarstaðli Akureyrarbæjar.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir tillögu að hönnunarstaðli með 5 samhljóða atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Guðmundur Baldvin Guðmundsson kynnti tillöguna.
Bæjarstjórn samþykkir hönnunarstaðalinn með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Svifryk og hálkuvarnir

Málsnúmer 2019110515Vakta málsnúmer

Rætt um svifryk og hálkuvarnir á Akureyri.

Andri Teitsson fór yfir núverandi fyrirkomulag hálkuvarna og aðgerðir til að lágmarka svifryk auk þeirra leiða sem eru til skoðunar til að bæta hálkuvarnir og draga úr svifryksmengun.

Í umræðum tóku til máls Sóley Björk Stefánsdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Heimir Haraldsson, Hilda Jana Gísladóttir, Gunnar Gíslason, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Þórhallur Jónsson og Hlynur Jóhannsson.

6.Ungmennaráð - starfsemi

Málsnúmer 2011030133Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurskoðaðri samþykkt fyrir ungmennaráð sem afgreidd voru í frístundaráði 6. nóvember sl. og samþykkt með breytingum í bæjarráði 21. nóvember sl.

Halla Björk Reynisdóttir kynnti drögin. Einnig tók til máls Berglind Ósk Guðmundsdóttir.
Bæjarstjórn samþykkir endurskoðaða samþykkt fyrir ungmennaráð með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Norðurorka hf. - starfsemi og framkvæmdaáætlun

Málsnúmer 2019110517Vakta málsnúmer

Rætt um starfsemi og framkvæmdaáætlun Norðurorku hf.

Framsögu hafði Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður stjórnar Norðurorku hf.

Í umræðum tóku til máls Gunnar Gíslason, Hilda Jana Gísladóttir, Sóley Björk Stefánsdóttir, Halla Björk Reynisdóttir, Ingibjörg Ólöf Isaksen og Andri Teitsson.

8.Hafnasamlag Norðurlands bs. - starfsemi og framkvæmdaáætlun

Málsnúmer 2019110519Vakta málsnúmer

Rætt um starfsemi og framkvæmdaáætlun Hafnasamlags Norðurlands bs.

Framsögu hafði Þorsteinn Hlynur Jónsson formaður stjórnar HN.

Í umræðum tóku til máls Andri Teitsson, Gunnar Gíslason, Halla Björk Reynisdóttir, Sóley Björk Stefánsdóttir og Hilda Jana Gísladóttir. Að umræðum loknum svaraði Þorsteinn Hlynur Jónsson fyrirspurnum bæjarfulltrúa.

9.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.
Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa 21. og 28. nóvember 2019
Bæjarráð 21. og 28. nóvember 2019
Frístundaráð 20. nóvember 2019
Fræðsluráð 18. nóvember 2019
Kjarasamninganefnd 14. nóvember 2019
Skipulagsráð 27. nóvember 2019
Stjórn Akureyrarstofu 21. nóvember 2019
Umhverfis- og mannvirkjaráð 15. nóvember 2019
Velferðarráð 20. nóvember 2019

Hægt er að nálgast fundargerðirnar á heimasíðu Akureyrarbæjar: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/fundargerdir

Fundi slitið - kl. 18:22.