Bæjarráð

3442. fundur 18. desember 2014 kl. 09:00 - 12:12 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Matthíasar Rögnvaldssonar.

1.Bæjarsjóður - yfirlit um rekstur 2014

Málsnúmer 2014050012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til október 2014.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Nefndalaun - reglur 2014

Málsnúmer 2014120080Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að endurskoðuðum reglum um nefndalaun.
Bæjarráð samþykkir reglurnar.

3.Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2014-2018 - viðauki

Málsnúmer 2014060081Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki dagsettur 18. desember 2014 við ráðningarsamning bæjarstjóra dags. 18. júní 2014.
Meirihluti bæjarráðs staðfestir viðaukann við ráðningarsamninginn.
Gunnar Gíslason D-lista sat hjá við afgreiðslu.

4.Grímsey - ferjusiglingar

Málsnúmer 2014120057Vakta málsnúmer

Lagður fram undirskriftarlisti frá 40 Grímseyingum sem afhentur var bæjarstjóra 10. desember 2014.
Í undirskriftarlistanum er óskað eftir að ferjusiglingum verði fjölgað í 5 ferðir á viku í a.m.k. 4 mánuði, þ.e. í maí, júní, júlí og ágúst, vegna mikilla hagsmuna með tilliti til fiskveiða og ferðaþjónustu.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið Grímseyinga og felur bæjarstjóra að vinna að málinu.

5.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2014-2015

Málsnúmer 2014100184Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 11. desember 2014. Fundargerðin er í 1 lið.
Bæjarráð vísar fundargerðinni til framkvæmdadeildar.

6.Íbúalýðræði

Málsnúmer 2014110248Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð bæjarstjórnar dagsett 2. desember 2014:
Gunnar Gíslason D-lista lagði fram tillögu að bókun svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að fela bæjarráði að móta tillögu að stefnu Akureyrarbæjar í íbúalýðræði og aukinni virkni íbúa í stjórnsýslu bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.
Málið rætt í bæjarráði.

7.Gegnsæ stjórnsýsla

Málsnúmer 2014100323Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð bæjarstjórnar dagsett 2. desember 2014:
Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista lagði fram tillögu að bókun svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að fela bæjarráði að móta tillögu að stefnu Akureyrarbæjar um að auka gagnsæi í stjórnsýslu bæjarins.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.
Málið rætt í bæjarráði.
Í lok fundar óskaði formaður bæjarráðs bæjarráðsmönnum og starfsmönnum Akureyrarbæjar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakkaði samstarfið á árinu.

Fundi slitið - kl. 12:12.