Bæjarráð

3438. fundur 20. nóvember 2014 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2015-2018

Málsnúmer 2014060172Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjarráð undir þessum lið.

2.Heimild til lántöku

Málsnúmer 2014110092Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. nóvember 2014 frá Sævari Péturssyni framkvæmdastjóra KA þar sem óskað er eftir heimild til lántöku, með vísan til rekstrarsamnings KA og Akureyrarbæjar, fyrir allt að 15.000.000 kr. vegna fyrirhugaðra framkvæmda við félagsheimili þeirra.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir heimild félagsins til lántöku að upphæð allt að kr. 15.000.000.

3.Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands

Málsnúmer 2011060107Vakta málsnúmer

Arnheiður Jóhannsdóttir verkefnisstjóri hjá Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi mætti á fund bæjarráðs og kynnti vinnu varðandi flugklasann Air66N.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir áframhaldandi stuðning við verkefnið.

4.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir veturinn 2014-2015

Málsnúmer 2014100184Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 13. nóvember 2014. Fundargerðin er í 10 liðum.

Bæjarráð vísar 3. lið til skipulagsdeildar, 5. og 6. lið til skólanefndar, 8. lið til framkvæmdadeildar, 9. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar.

1., 2., 4., 7. og 10. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

5.Hverfisnefnd Síðuhverfis - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014010010Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 40. fundar hverfisnefndar Síðuhverfis dagsett 3. nóvember 2014.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/siduhverfi/fundargerdir

Bæjarráð vísar 2. lið til skipulagsdeildar, 4. lið a), b), c), e) og f) til framkvæmdadeildar.

1., 3. og 4. liður d) eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

6.Hverfisnefnd Holta- og Hlíðahverfis - fundargerðir 2014

Málsnúmer 2014010038Vakta málsnúmer

Lögð fram 79. fundargerð hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dagsett 4. nóvember 2014. Fundargerðina má finna á netslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/holta-og-hlidahverfi

Bæjarráð vísar 3. og 4. lið til framkvæmdadeildar.

1. og 2. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði.

7.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 258., 259. og 260. fundar stjórnar Eyþings dagsettar 3. og 15. október og 3. nóvember 2014.
Fundargerðirnar má finna á slóðinni: https://www.eything.is/is/fundargerdir-1

Fundi slitið - kl. 11:00.