Heimild til lántöku

Málsnúmer 2014110092

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3438. fundur - 20.11.2014

Erindi dagsett 12. nóvember 2014 frá Sævari Péturssyni framkvæmdastjóra KA þar sem óskað er eftir heimild til lántöku, með vísan til rekstrarsamnings KA og Akureyrarbæjar, fyrir allt að 15.000.000 kr. vegna fyrirhugaðra framkvæmda við félagsheimili þeirra.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir heimild félagsins til lántöku að upphæð allt að kr. 15.000.000.