Bæjarráð

3380. fundur 12. september 2013 kl. 09:00 - 10:50 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Njáll Trausti Friðbertsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá
Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista mætti í forföllum Geirs Kristins Aðalsteinssonar.
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti í forföllum Sigurðar Guðmundssonar.

1.Úttekt á rekstri Fasteigna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2013060049Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar dags. 6. september 2013:
Fjallað var um úttekt á rekstri FA.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar vísar málinu til umfjöllunar í bæjarráði.

Bæjarráð frestar umfjöllun til næsta fundar.

2.Kjarasamningaviðræður

Málsnúmer 2013090079Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri sat fundinn undir þessum lið og fór yfir komandi kjarasamningaviðræður.

3.Fjárhagsáætlun 2014 - íþróttaráð

Málsnúmer 2013080071Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 5. september 2013:
Drög að gjaldskrá Skíðastaða í Hlíðarfjalli, umræður og vinna vegna fjárhagsáætlunar fyrir starfsárið 2014.
Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Skíðastaða í Hlíðarfjalli sat fundinn undir þessum lið.
Íþróttaráð samþykkir fyrirlögð drög að gjaldskrá Skíðastaða í Hlíðarfjalli og vísar til bæjarráðs.
Íþróttaráð þakkar Guðmundi Karli fyrir komuna.

Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir Hlíðarfjall.

4.Viðtalstímar bæjarfulltrúa október 2013 - apríl 2014 - áætlun

Málsnúmer 2013090077Vakta málsnúmer

Lögð fram áætlun um viðtalstíma bæjarfulltrúa frá október 2013 til apríl 2014.
Áætlunin verður birt á heimasíðu Akureyrarbæjar, slóðin er: http://www.akureyri.is/stjornkerfid/baejarstjorn/

Bæjarráð samþykkir áætlunina.

5.Hverfisnefnd Naustahverfis - fundargerðir 2013

Málsnúmer 2013010212Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 50. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dags. 3. september 2013.
Fundargerðina má finna á vefslóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir/naustahverfi/fundargerdir

Bæjarráð vísar 2. lið til Fasteigna Akureyrarbæjar aðrir liðir lagðir fram til kynningar.

6.Curitiba í Brasilíu

Málsnúmer 2013010136Vakta málsnúmer

Boð dags. 26. ágúst 2013 frá Curitiba í Brasilíu um heimsókn fulltrúa Akureyrarbæjar til borgarinnar.
Sigríður Stefánsdóttir verkefnastjóri samskipta mætti á fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og verkefnastjóra samskipta að svara bréfritara í samræmi við umræður á fundinum.

Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista fór af fundi kl. 10:25.

Fundi slitið - kl. 10:50.