Vinnuskóli 2013 - laun

Málsnúmer 2013030134

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3358. fundur - 21.03.2013

Lögð fram tillaga um laun í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2013.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista að laun unglinga í Vinnuskóla Akureyrarbæjar sumarið 2013 hækki um 3,25% frá fyrra ári og verði sem hér segir:

8. bekkur    (14 ára) kr. 368

9. bekkur    (15 ára) kr. 420

10. bekkur   (16 ára) kr. 553

10,17% orlof er greitt til viðbótar við tímakaup.


Sigurður Guðmundsson A-lista óskar bókað: Ég tel að laun unglinga séu of lág og þessi hækkun sé ekki nægileg.