Bæjarráð

3357. fundur 14. mars 2013 kl. 09:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Anna Hildur Guðmundsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Inda Björk Gunnarsdóttir L-lista mætti í forföllum Geirs Kristins Aðalsteinssonar.
Anna Hildur Guðmundsdóttir A-lista mætti í forföllum Sigurðar Guðmundssonar.

1.Aðal- og deiliskipulag Glerárdals - vatnsaflsvirkjun samkvæmt "efri kosti"

Málsnúmer 2013030045Vakta málsnúmer

Erindi dags. 5. mars 2013 frá Andra Teitssyni framkvæmdastjóra Fallorku ehf þar sem óskað er eftir að Akureyrarbær taki afstöðu til breytingar á aðal- og deiliskipulagi Glerárdals og hefji þá vinnu með það fyrir augum að Fallorku ehf verði heimilað að reisa þar 3,3 MW vatnsaflsvirkjun samkvæmt "efri kosti".
Andri Teitsson mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir málið.

Í upphafi þessa dagskrárliðar vakti Halla Björk Reynisdóttir L-lista á því athygli að hún teldi sig vanhæfa að fjalla um þennan lið vegna stjórnarsetu sinnar í Fallorku ehf.

Með vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir bæjarráð og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

Halla Björk Reynisdóttir ásamt Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra og Jóni Braga Gunnarssyni hagsýslustjóra, sem einnig eiga sæti í stjórn Fallorku ehf, viku af fundi við afgreiðslu málsins.

  

Bæjarráð þakkar Andra fyrir kynninguna.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra og Oddi Helga Halldórssyni bæjarfulltrúa að fara í viðræður við forsvarsmenn Fallorku ehf um virkjunarkosti í Glerá og framkvæmdir því tengdu.

Bæjarráð vísar málinu að öðru leyti til skipulagsnefndar.

2.Gásakaupstaður ses - aðalfundur 2013

Málsnúmer 2013030037Vakta málsnúmer

Erindi dags. 28. febrúar 2013 frá Guðmundi Sigvaldasyni f.h. stjórnar Gásakaupstaðar ses þar sem boðað er til aðalfundar föstudaginn 22. mars nk. kl. 12:00 í Laxdalshúsi, efri hæð, Hafnarstræti 11, Akureyri.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vera fulltrúi Akureyrarbæjar á fundinum.

3.Golfklúbbur Akureyrar - ósk um styrk vegna vetrarskaða á svæði klúbbsins

Málsnúmer 2013020215Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. mars 2013 frá framkvæmdastjóra Golfklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir styrk vegna vetrarskaða á svæði klúbbsins.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

4.Íþróttafélagið Þór - styrkbeiðni vegna vetrarskemmda á svæði félagsins

Málsnúmer 2013030085Vakta málsnúmer

Erindi dags. 11. mars 2013 frá framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Þórs þar sem óskað er eftir styrk vegna kostnaðar við björgunaraðgerðir á grasvöllum Þórssvæðisins.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.

5.Akureyrarkaupstaður 150 ára - afmælisgjöf frá ríkisstjórn Íslands

Málsnúmer 2012090086Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um hvernig verja eigi afmælisgjöf ríkisstjórnar Íslands til Akureyrarkaupstaðar í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins á síðasta ári.

Bæjarráð samþykkir tilllöguna.

Fundi slitið - kl. 11:00.