Bæjarráð

3343. fundur 29. nóvember 2012 kl. 09:00 - 10:22 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar 2012

Málsnúmer 2012110101Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 22. nóvember sl. en þá var lögð fram tillaga að breytingum á Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar tillögu að breytingum á Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

2.Hverfisnefndir og hverfisráð - fundargerðir

Málsnúmer 2007020100Vakta málsnúmer

Lagðar fram eftirfarandi fundargerðir til kynningar:
Fundargerð 45. fundar hverfisnefndar Naustahverfis dags. 20. nóvember 2012.
Fundargerð 2. fundar hverfisráðs Grímseyjar dags. 19. nóvember 2012.
Fundargerðirnar má finna á slóðinni: http://www.akureyri.is/is/stjornkerfid/hverfisnefndir

3.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2013-2016 - gjaldskrá leikskóla og skólavistunar

Málsnúmer 2012060047Vakta málsnúmer

Tekin fyrir að nýju gjaldskrá leikskóla og skólavistunar sem bæjarráð frestaði afgreiðslu á þann 15. nóvember sl.

Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 10:22.