Bæjarráð

3329. fundur 23. ágúst 2012 kl. 09:00 - 11:59 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Logi Már Einarsson áheyrnarfulltrúi
  • Ólafur Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Norðurorka hf

Málsnúmer 2012080065Vakta málsnúmer

Rætt um málefni Norðurorku hf.
Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku hf mætti á fundinn undir þessum lið og fór yfir stöðu mála.

Bæjarráð þakkar Helga fyrir komuna.

2.Rekstur - staða mála - embættismenn 2012

Málsnúmer 2012020046Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur og Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri mættu á fundinn og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda.

3.Akureyrarkaupstaður 150 ára árið 2012

Málsnúmer 2009090008Vakta málsnúmer

Umræður um dagskrá hátíðarfundar bæjarstjórnar og aðra dagskrá hátíðarhaldanna.
Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri afmælisársins mætti á fundinn undir þessum lið.

Dagskrá hátíðarfundar bæjarstjórnar er færð í trúnaðarbók bæjarráðs.

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista vék af fundi kl. 10:52.

4.Menningarhúsið Hof - rekstur ársins 2011

Málsnúmer 2012080059Vakta málsnúmer

Erindi dags. 15. ágúst 2012 frá Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur framkvæmdastjóra Hofs, þar sem greint er í stuttu máli frá rekstri fyrstu tveggja starfsáranna og fyrirhuguð starfsemi næstkomandi starfsárs kynnt.
Einnig er greint frá því að stjórn Menningarfélagsins Hofs ses hefur tekið þá ákvörðun að skila eins og hálfrar milljónar króna rekstrarafgangi síðasta starfsárs til Akureyrarbæjar með áskorun um að stofnaður verði sjóður sem listamenn og framleiðendur listviðburða á svæðinu geti sótt í.

Bæjarráð fagnar þeim góða árangri sem Menningarfélagið Hof hefur náð á fyrstu árum rekstrarins og felur stjórn Akureyrarstofu að vinna tillögu að nýtingu rekstrarafgangsins.

5.SS Byggir ehf - gatnagerðargjöld vegna Hálanda

Málsnúmer 2012040094Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 3. maí sl.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður fór yfir málið.
Logi Már Einarsson S-lista vék af fundi undir þessum lið.

Með vísan til réttaróvissu afturkallar bæjarráð ákvörðun sína dags. 3. maí 2012 um álagningu gatnagerðargjalds á fyrirhugaða byggingu sem veitt hefur verið byggingarleyfi fyrir að Hrímlandi 1 í landi Hálanda við Hlíðarfjallsveg.

Fundi slitið - kl. 11:59.