Bæjarráð

3314. fundur 29. mars 2012 kl. 09:00 - 11:55 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2011

Málsnúmer 2011110164Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2011.
Hólmgrímur Bjarnason og Aðalsteinn Sigurðsson endurskoðendur frá Deloitte mættu á fundinn og skýrðu ársreikninginn.
Einnig sat Karl Guðmundsson verkefnastjóri fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð vísar ársreikningi Akureyrarbæjar fyrir árið 2011 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

2.Rekstur - staða mála - embættismenn 2012

Málsnúmer 2012020046Vakta málsnúmer

Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri, Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda eftir fyrstu mánuði ársins 2012. Að auki fóru Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri yfir rekstrarstöðu sinna deilda.

3.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2012

Málsnúmer 2012020029Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar 795. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 16. mars 2012.

4.Rótarýklúbbur Akureyrar - áningarsvæði við Eyjafjarðarbraut vestri

Málsnúmer 2007040080Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dags. 26. mars 2012 frá Birni Teitssyni f.h. Rótarýklúbbs Akureyrar þar sem óskað er eftir stuðningi Akureyrarbæjar vegna áningarstaðar í Botnsreit.

Bæjarráð felur Dan Jens Brynjarssyni fjármálastjóra að ræða við bréfritara.

5.Leikfélag Akureyrar

Málsnúmer 2011080046Vakta málsnúmer

Halla Björk Reynisdóttir bæjarfulltrúi L-lista og formaður stjórnar Akureyrarstofu greindi frá viðræðum við LA um rekstur atvinnuleikhúss.

6.Landsskipulagsstefna 2013-2024 - skipulagslýsing og matslýsing vegna umhverfismats

Málsnúmer 2012030117Vakta málsnúmer

8. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 28. mars 2012:
Skipulagsstofnun hefur tekið saman lýsingu á gerð landsskipulagsstefnu og umhverfismati sbr. reglugerð um landsskipulagsstefnu nr. 1001/2011. Stofnunin auglýsir eftir athugasemdum og ábendingum við lýsinguna á samráðsvettvangi og er hægt að koma athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun til 29. mars 2012.
Skipulagsnefnd telur að lýsingin sé almennt vel unnin og í samræmi við þær áherslur sem kynntar hafa verið í undanfara verkefnisins. Ekki eru gerðar athugasemdir við framlagningu og áherslurnar sem fram koma í lýsingunni um landsskipulagsstefnuna eða í matslýsingunni um umhverfismatið en þó er tekið undir þau atriði sem fram koma í minnisblaði skipulagsmálanefndar Sambands ísl. sveitarfélaga dagsett 13. mars sl.
Skipulagsnefnd telur að tímasetningar samráðsferlisins séu of knappar þar sem gert er ráð fyrir að öllu samráðsferli verði lokið á haustdögum sem getur haft þau áhrif að afrakstur stefnumótunarvinnunnar verði ómarkviss.
Afgreiðslu málsins er vísað til bæjarráðs.
Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð tekur undir bókun skipulagsnefndar.

Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista vék af fundi kl. 11:27.
Ólafur Jónsson D-lista vék af fundi kl. 11:32.

7.Önnur mál

Málsnúmer 2012010085Vakta málsnúmer

Gjöf frá Íslandsbanka.
Íslandsbanki hefur gefið sveitarfélaginu málverkið Álfkonan eftir Eirík Smith.
Akureyrarkaupstaður þakkar kærlega fyrir gjöfina.

Fundi slitið - kl. 11:55.