Bæjarráð

3281. fundur 04. ágúst 2011 kl. 09:00 - 09:25 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hermann Jón Tómasson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.Ålesund - samúðarkveðjur

Málsnúmer 2011070080Vakta málsnúmer

Vegna voðaverkanna sem framin voru í Osló og Útey föstudaginn 22. júlí sl. sendi bæjarstjórn Akureyrar samúðarkveðjur til íbúa Ålesunds, vinabæjar Akureyrarbæjar í Noregi, frá íbúum Akureyrarbæjar.
Í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar liggur frammi bók þar sem þeir sem vilja votta Norðmönnum samúð sína geta ritað nafn sitt í til og með 5. ágúst nk.

2.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Lögð fram eftirfarandi tillaga L-listans um breytingar á fulltrúum listans í umhverfisnefnd:
Hulda Stefánsdóttir tekur sæti formanns í stað Sigmars Arnarssonar. Páll Steindórsson tekur sæti aðalmanns í stað Sigmars Arnarssonar. Páll Steindórsson tekur sæti varaformanns í stað Huldu Stefánsdóttur og Margrét Auður Sigurbjörnsdóttir tekur sæti varamanns í stað Páls Steindórssonar.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 7. júní 2011.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

 

 

3.Heiðartún 1-3-5 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2011050157Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 27. júlí 2011:
Erindi dagsett 27. maí 2011 þar sem byggingaverktaki við Heiðartún 5, Reisum byggingarfélag ehf., kt. 470809-0270, eigendur Heiðartúns 3, Sigurður Ólason og Áshildur Hlín Valtýsdóttir og eigendur Heiðartúns 1, Sigvaldi Þorleifsson og Særún Emma Stefánsdóttir, óska eftir breytingu á deiliskipulagi vestan lóðanna. Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi, unnin af X2 hönnun-skipulagi, dagsett 7. júlí 2011.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 7. júní 2011.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að senda málið í grenndarkynningu.

4.Krossanes, Becromal - umsókn um deiliskipulagsbreytingu vegna byggingarleyfis fyrir vakthús

Málsnúmer 2011060019Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 27. júlí 2011:
Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi, unnin af AVH, dagsett 28. júní 2011. Breytingin felst í stækkun byggingarreits vegna staðsetningar vakthúss innan lóðar aflþynnuverksmiðjunnar.
Þar sem einungis er um að ræða minniháttar stækkun byggingarreits og er því breyting sem varðar einungis Akureyrarbæ og lóðarhafa leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 7. júní 2011.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar.

5.Sunnuhlíð 11 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu vegna byggingarleyfis fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2011070058Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 27. júlí 2011:
Erindi dagsett 19. júlí 2011 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Halldórs Arnars Kristjánssonar og Sigurbjargar Óskar Jónsdóttur óskar eftir heimild til að stækka húsið Sunnuhlíð 11. Jafnframt er óskað eftir deiliskipulagsbreytingu þar sem fyrirhuguð viðbygging fer út fyrir byggingarreit. Meðfylgjandi er afstöðu- og útlitsmynd.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 7. júní 2011.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að senda málið í grenndarkynningu.

6.Barmahlíð 8 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2011070061Vakta málsnúmer

6. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 27. júlí 2011:
Erindi dagsett 19. júlí 2011 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir f.h. Sigurgeirs Svavarssonar ehf., kt. 680303-3630, óskar eftir breytingu á deiliskipulagi við Barmahlíð 8. Meðfylgjandi eru 2 tillöguteikningar og afstöðumynd.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 9. lið fundargerðar bæjarstjórnar 7. júní 2011.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að senda málið í grenndarkynningu.

7.Verslunarmannahelgin - Ein með öllu 2011

Málsnúmer 2011070013Vakta málsnúmer

Bæjarráð þakkar öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarhaldanna um verslunarmannahelgina og öllum þeim sem þátt tóku í hátíðarhöldunum.

Fundi slitið - kl. 09:25.