Bæjarráð

3832. fundur 21. desember 2023 kl. 08:15 - 09:58 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir varaformaður
  • Hlynur Jóhannsson
  • Gunnar Már Gunnarsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Olga Margrét Kristínard. Cilia lögfræðingur
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Gunnar Már Gunnarsson B-lista sat fundinn í forföllum Sunnu Hlínar Jóhannesdóttur.

1.Afskriftir lána 2022 - 2023

Málsnúmer 2022120475Vakta málsnúmer

Liður 4 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 13. desember 2023:

Lögð fram tillaga velferðarsviðs um afskriftir lána í fjárhagsaðstoð.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð samþykkir tillögu að afskriftum lána og vísar málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að afskrifuð verði lán vegna fjárhagsaðstoðar sem veitt voru 2012-2021 þar sem hefðbundnar innheimtuaðgerðir hafa verið reyndar án árangurs. Heildarfjárhæð er kr. 2.076.854.

2.Samtök um kvennaathvarf - umsókn um rekstrarstyrk 2024

Málsnúmer 2023111322Vakta málsnúmer

Liður 10 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 13. desember 2023:

Lögð fram beiðni frá Kvennaathvarfinu um styrk 1,5 m.kr. vegna athvarfsins á Akureyri.

Velferðarráð leggur áherslu á mikilvægi starfsemi Kvennaathvarfsins á Norðurlandi og vísar málinu áfram til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að veita Samtökum um kvennaathvarf styrk að fjárhæð kr. 1.500.000.

3.Strandgata 3 - BSO

Málsnúmer 2023030215Vakta málsnúmer

Liður 4 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 14. desember 2023:

Lagt fram erindi dagsett 4. desember 2023 þar sem stjórnendur BSO óska eftir framlengingu á stöðuleyfi leigubílastöðvar við Strandgötu.

Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar og óskar eftir að stjórn BSO mæti á fund bæjarráðs.

Smári Ólafsson, Gylfi Ásmundsson og Sveinbjörn Egilson stjórnarmenn BSO sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Á fundi skipulagsráðs 15. mars 2023 fól meirihluti ráðsins skipulagsfulltrúa að hefja undirbúning að auglýsingu lóða við Hofsbót 1 og 3. Í kjölfarið hófst samráð við m.a. Vegagerðina sem varð til þess að gerð var minniháttar breyting á lóðum við Hofsbót og Skipagötu sem liggja samsíða Glerárgötu. Á fundi skipulagsráðs 13. desember 2023 fól skipulagsráð skipulagsfulltrúa að undirbúa gerð útboðsskilmála og kynna áformin jafnframt fyrir umhverfis- og mannvirkjasviði og Norðurorku. Það er því ljóst að lóðir við Hofsbót 1 og 3 verða auglýstar á næsta ári. Bæjarráð samþykkir að veita BSO lengri frest að fara af svæðinu. Ef tilboð berst í Hofsbót 1 sem bæjarráð samþykkir þarf BSO að fara með starfsemi sína og húsakost með sex mánaða fyrirvara.

4.Fundargerðir öldungaráðs 2022 - 2023

Málsnúmer 2023050173Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 32. og 33. fundar öldungaráðs Akureyrarbæjar dagsettar 8. nóvember og 13. desember 2023.
Bæjarráð vísar lið 2 í fundargerð nr. 33 til fræðslu- og lýðsheilsuráðs og hvetur til þess að ráðið skoði hvort að tækifæri séu til úrbóta er varðar næringu eldra fólks, t.a.m. með fræðslu eða öðrum stuðningi.

5.Hverfisráð Grímseyjar - fundargerðir 2023

Málsnúmer 2023030655Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 43. fundar hverfisráðs Grímseyjar og íbúafundar í Grímsey sem haldnir voru 28. nóvember 2023.
Bæjarráð vísar liðum 2-4 í fundargerð íbúafundarins til umhverfis- og mannvirkjasviðs og lið 5 til skipulagsráðs.

6.Hafnasamlag Norðurlands 2023

Málsnúmer 2023010868Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 284. fundar stjórnar Hafnasamlags Norðurlands dagsett 13. desember 2023.

7.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2023

Málsnúmer 2023011377Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 56., 57. og 58. fundar stjórnar SSNE dagsettar 1. nóvember, 29. nóvember og 6. desember 2023.

Fundi slitið - kl. 09:58.