Bæjarráð

3822. fundur 12. október 2023 kl. 08:15 - 10:32 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir varaformaður
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Brynjólfur Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
  • Olga Margrét Kristínard. Cilia lögfræðingur
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Bæjarsjóður Akureyrarbæjar - yfirlit um rekstur 2023

Málsnúmer 2023050347Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar átta mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Þá sátu bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir og Gunnar Már Gunnarsson undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2024-2027

Málsnúmer 2023020943Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.

Þá sátu bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir og Gunnar Már Gunnarsson undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.

3.Fjárhagsáætlun Þjónustu og skipulagssviðs - 2024

Málsnúmer 2023090427Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhags- og starfsáætlun þjónustu- og skipulagssviðs fyrir skipulags- og byggingarmál og atvinnu- og menningarmál, ásamt starfsáætlun þjónustu og þróunar fyrir árið 2024.

Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs, Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra þjónustu- og skipulagssviðs að vinna málið áfram.

4.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2023061032Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhags- og starfsáætlun velferðarráðs fyrir árið 2024.

Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs, Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að vinna málið áfram.

5.Eigendastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2023030902Vakta málsnúmer

Liður 7 í fundargerð bæjarráðs dagsettri 28. september 2023:

Skipun vinnuhóps um gerð eigendastefnu fyrir B-hluta fyrirtæki Akureyrarbæjar.

Bæjarráð samþykkir að hefja vinnu við gerð eigendastefnu og felur bæjarstjóra að útbúa erindisbréf fyrir vinnuhópinn. Eftirtaldir aðilar eru skipaðir í vinnuhópinn; Hlynur Jóhannsson M-lista, Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista, Geir Kristinn Aðalsteinsson L-lista, Gunnar Már Gunnarsson B-lista, Hilda Jana Gísladóttir S-lista, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri og Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra.

Á fundinum er lagt fram erindisbréf fyrir vinnuhópinn.

Hulda Sif Hermansdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið.

6.Umhverfis- og loftslagsstefna Akureyrarbæjar 2022-2030

Málsnúmer 2022060764Vakta málsnúmer

Lagður fram nýr sjötti kafli í umhverfis- og loftslagsstefnu Akureyrarbæjar. Umhverfis- og loftslagsstefnan var samþykkt í maí 2022 en bæjarstjórn fól síðan umhverfis- og mannvirkjasviði að bæta við kafla/áherslum um umgengni og þrifnað utanhúss.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að bæta framlögðum kafla við umhverfis- og loftslagsstefnuna með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar málinu til umræðu og samþykktar í bæjarstjórn.

7.Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2023

Málsnúmer 2023011346Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dagsett 29. september 2023.

Fundi slitið - kl. 10:32.