Bæjarráð

3691. fundur 16. júlí 2020 kl. 08:15 - 11:29 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Mánaðarskýrsla bæjarráðs um starfsmanna- og launamál 2020

Málsnúmer 2020010382Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar mánaðarskýrsla um stöðugildi, yfirvinnu og fleira fyrir janúar-júní 2020.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Eining-Iðja - kjarasamningur 2020-2023

Málsnúmer 2020010351Vakta málsnúmer

Kynntar breytingar á kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambands Íslands fyrir hönd Einingar-Iðju.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Félag íslenskra náttúrufræðinga - kjarasamningur 2020-2023

Málsnúmer 2020060231Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningi Félags íslenskra náttúrufræðinga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Fræðagarður - kjarasamningur 2020-2021

Málsnúmer 2020070144Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags íslenskra félagsvísindamanna, Fræðagarðs, Stéttarfélags lögfræðinga og Stéttarfélags bókasafns- og upplýsingafræðinga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

5.Starfsmat Verkfræðingafélags Íslands og Stéttarfélags byggingafræðinga - framkvæmd 2020

Málsnúmer 2020070203Vakta málsnúmer

Kynntar niðurstöður og innleiðing starfsmats Verkfræðingafélags Íslands og Stéttarfélags byggingafræðinga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

6.Verkfræðingafélag Íslands kjarasamningur 2020-2023

Málsnúmer 2020070311Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkfræðingafélags Íslands og Stéttarfélags byggingafræðinga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

7.Félag leikskólakennara - kjarasamningur 2020-2021

Málsnúmer 2020070393Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningi Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

8.Félag stjórnenda leikskóla - kjarasamningur 2020-2021

Málsnúmer 2020070394Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningi Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

9.Skólastjórafélag Íslands - kjarasamningur 2020-2021

Málsnúmer 2020070392Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningi Skólastjórafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

10.Félag grunnskólakennara - kjarasamningur

Málsnúmer 2020070407Vakta málsnúmer

Kynnt samkomulag um endurskoðun viðræðuáætlunar milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara og Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

11.Félag íslenskra hljómlistarmanna - kjarasamningur 2020

Málsnúmer 2020070406Vakta málsnúmer

Kynning á nýgerðum kjarasamningi Félags íslenskra hljómlistarmanna og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

12.Nefndalaun - breytingar á reglum 2020

Málsnúmer 2020070390Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingum á reglum um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillöguna, með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum, með fimm samhljóða atkvæðum.

13.Stjórnsýslusvið - starfsáætlun 2021

Málsnúmer 2020070391Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að starfsáætlun stjórnsýslusviðs fyrir árið 2021.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

14.Miðbær - uppfærsla deiliskipulags

Málsnúmer 2017010274Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað um stöðu mála.
Bæjarráð samþykkir með fimm samhljóða atkvæðum að framlengja erindisbréf og starfstíma stýrihóps um endurskoðun deiliskipulags miðbæjar Akureyrar út árið 2020.

15.Hlíðarfjall - rekstur 2020

Málsnúmer 2020020385Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra samfélagssviðs vegna rekstrar og framkvæmda í Hlíðarfjalli dagsett 14. júlí 2020.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir að auka fjárveitingar til Hlíðarfjalls um 25 milljónir króna og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna málsins.

Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista situr hjá við afgreiðsluna.

Fundi slitið - kl. 11:29.