Bæjarráð

3657. fundur 17. október 2019 kl. 08:15 - 10:59 Fundaraðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Bæjarstjórn Akureyrarbæjar - breytingar í nefndum 2018-2022

Málsnúmer 2018060500Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga D-lista um breytingu á skipan aðalfulltrúa í kjarasamninganefnd:

Þórunn Sif Harðardóttir verði aðalfulltrúi í stað Gunnars Gíslasonar.
Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm samhljóða atkvæðum.

2.Bæjarsjóður Akureyrar - yfirlit um rekstur 2019

Málsnúmer 2019040448Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar átta mánaða rekstraryfirlit Akureyrarbæjar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

4.Fagrasíða 7c - sala

Málsnúmer 2019100176Vakta málsnúmer

Liður 5 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 11. október 2019:

Lagt fram tilboð sem barst í Fögrusíðu 7c.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga að tilboðinu með fyrirvara um samþykki bæjarráðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tilboðið.

5.Iðnaðarsafnið - beiðni um fjárstuðning

Málsnúmer 2018080050Vakta málsnúmer

Liður 3 í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsettri 10. október 2019:

Tekið fyrir að nýju erindi frá stjórn Iðnaðarsafnsins þar sem óskað er eftir auknum fjárstuðningi við rekstur safnsins. Erindið var áður á dagskrá þann 26. september sl.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir við bæjarráð að veittur verði viðauki við fjárhagsáætlun að upphæð kr. 2.500.000 til reksturs Iðnaðarsafnsins.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir ósk stjórnar Akureyrarstofu og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að útbúa viðauka vegna málsins og leggja fyrir bæjarráð.

6.Mánaðarskýrsla bæjarráðs um starfsmanna- og launamál 2019

Málsnúmer 2019020370Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar mánaðarskýrsla um stöðugildi, yfirvinnu og fleira fyrir september 2019.

7.Jarðgöng undir Tröllaskaga

Málsnúmer 2019090283Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. september 2019 frá Ólafi Jónssyni þar sem hann hvetur sveitarstjórnir og sambönd sveitarfélaga á Norðurlandi til að stofna verkefnahóp sem myndi skoða möguleika á tvennum jarðgöngum, annars vegar milli Hörgárdals og Skíðadals og hins vegar milli Skíðadals og Kolbeinsdals í Skagafirði.
Bæjarráð þakkar Ólafi fyrir erindið. Fyrir liggur sameiginleg bókun sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um mikilvægi þessa verkefnis fyrir Norðurland.

8.Beiðni um styrk vegna útgáfu bókar

Málsnúmer 2019090586Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. september 2019 þar sem Rósa Eggertsdóttir óskar eftir styrk frá bæjarráði vegna útgáfu bókarinnar Hið ljúfa læsi. Handbók í læsiskennslu fyrir kennara og kennaranema.
Bæjarráð samþykkir styrkveitingu að upphæð kr. 250.000 sem færist af styrkveitingum bæjarráðs.

9.Úthlutun á aflamarki í Grímsey - ósk um umsögn bæjarráðs

Málsnúmer 2019090181Vakta málsnúmer

Lögð fram bókun Aflamarksnefndar Byggðastofnunar dagsett 14. október 2019 varðandi umsókn Hafborgar ehf. um aflamark í Grímsey 2018-2024. Óskað er eftir umsögn bæjarráðs Akureyrarbæjar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við bókun Aflamarksnefndar Byggðastofnunar.

10.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2019

Málsnúmer 2019010208Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 10. október 2019.
Bæjarráð vísar lið 1 til skipulagssviðs, lið 2 til stjórnar Akureyrarstofu, lið 3 til skipulagsviðs og umhverfis- og mannvirkjasviðs, lið 6 til bæjarstjóra og lið 7 til umhverfis- og mannvirkjasviðs. Liðir 4, 5 og 8 eru lagðir fram til kynningar.

11.Heilbrigðisnefnd Norðurlandssvæðis eystra - fundargerðir

Málsnúmer 2019020406Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir heilbrigðisnefndar Norðurlandssvæðis eystra dagsettar 26. júní og 17. september 2019.

Fundargerðir nefndarinnar er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.hne.is/is/fundargerdir

Jafnframt lögð fram til kynningar fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra fyrir árið 2020.
Bæjarráð felur formanni bæjarráðs að ræða við framkvæmdastjóra HNE um fjárhagsáætlun ársins 2020.

Fundi slitið - kl. 10:59.