Bæjarráð

3491. fundur 21. janúar 2016 kl. 08:30 - 11:47 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Dagskrá

Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Matthíasar Rögnvaldssonar.

1.Mannauðsstefna Akureyrarbæjar - endurskoðun

Málsnúmer 2015120168Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri og Ingunn Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri starfsþróunar kynntu vinnu við endurskoðun á mannauðsstefnu Akureyrarbæjar.

2.Afskriftir krafna 2015

Málsnúmer 2016010130Vakta málsnúmer

Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri lagði fram tillögu dagsetta 19. janúar 2016 um afskriftir krafna.

Kröfurnar eru frá árunum 2012 og eldri árum. Jafnframt er um að ræða yngri kröfur hjá gjaldþrota aðilum og einstaklingum sem fengið hafa greiðsluaðlögun.

Samtals er um 690 kröfur að ræða að fjárhæð kr. 7.556.200.
Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra.

3.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2015050149Vakta málsnúmer

Afgreiðsla bæjarráðs færð í trúnaðarmálabók bæjarráðs.

4.Snjómokstur

Málsnúmer 2015100044Vakta málsnúmer

Umræður um snjómokstur í kringum skóla bæjarins.
Bæjarstjóri greindi frá því að umræður um snjómokstur verða í framkvæmdaráði á morgun þar sem snjómokstur við skóla verður einnig ræddur með það að leiðarljósi að öryggi barna verði haft í fyrirrúmi.

5.Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð

Málsnúmer 2015110022Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 14. janúar 2016. Fundargerðin er í tveimur liðum.
Bæjarráð vísar 1. lið til samfélags- og mannréttindaráðs og 2. lið til framkvæmdadeildar.

Fundi slitið - kl. 11:47.