Afgreiðslufundur skipulagsstjóra

548. fundur 10. júlí 2015 kl. 13:00 - 14:00 Fundarherbergi skipulagsdeild
Nefndarmenn
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Eyrarlandsvegur 28 - auglýsingaskilti

Málsnúmer 2015070022Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. júlí 2015 þar sem Jóhanna Tryggvadóttir f.h. Hótels Eddu Akureyri, kt. 621297-6949, sækir um leyfi til að setja upp auglýsingaskilti á ljósastaur við innkeyrslu að lóðinni Eyrarlandsvegi 28.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem auglýsingarskilti eru ekki leyfð utan lóðar. Bent er á að heimilt er að setja upp upplýsingaskilti innan lóðar, við innkeyrslu að lóð MA.

2.Hlíðarfjallsvegur - stöðuleyfi fyrir dreifistöð vegna Unglingalandsmóts o.fl.

Málsnúmer 2015070025Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. júlí 2015 þar sem Baldur Hólm f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um leyfi til að setja upp færanlega rafmagnsdreifistöð sunnan Hlíðarfjallsvegar austan svæðis Bílaklúbbsins vegna aðstöðu fyrir Unglingalandlandsmót o.fl. Óskað er eftir stöðuleyfi til 1. september 2015. Meðfylgjandi eru myndir.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

3.Grundargerði 2j - umsókn um tímabundna breytta notkun

Málsnúmer 2015060185Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. júlí 2015 þar sem Kristján H. Kristjánsson f.h. Heiðrúnar Hermannsdóttur Beck sækir tímabundið um breytta notkun á þvotthúsi og geymslu í húsi nr. 2j við Grundargerði. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda í raðhúsinu.
Skipulagsstjóri samþykkir tímabundið leyfi til 5 ára.

4.Bjarmastígur 2 - sameining eigna hússins

Málsnúmer 2015070027Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. júlí 2015 þar sem Valgerður Melstað sækir um sameiningu eigna í húsi nr. 2 við Bjarmastíg í eina eign, einbýlishús.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið og óskar eftir uppfærðum aðaluppdráttum.

5.Þrumutún 6 - byggingarleyfi

Málsnúmer BN070492Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. júní 2015 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Fjölnis ehf., kt 530289-2069, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 6 við Þrumutún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Innkomnar teikningar 6. júlí 2015.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

6.Kambsmýri 14 - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2015050099Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. júlí 2015 þar sem Karl Frímannsson sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 14 við Kambsmýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.

7.Draupnisgata 2 - afturköllun á byggingaráformum

Málsnúmer 2014060159Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. júlí 2015 þar sem Friðbjörn Benediktsson f.h. Johan Rönning hf., kt. 670169-5459, óskar eftir að byggingaráform, sem samþykkt voru 15. maí sl., fyrir stálgrindarskemmu á lóð nr. 2 við Draupnisgötu verði felld úr gildi.
Skipulagsstjóri samþykkir að fella byggingaráformin niður. Greiðsluseðill fyrir gatnagerðargjaldi verður felldur niður en önnur gjöld standa.

8.Norðurgata 44 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2015070063Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2015 þar sem Finnur V. Bjarnason sækir um leyfi fyrir bílastæði á lóð nr. 44 við Norðurgötu. Einnig er spurt um hugsanlegar breytingar á inngangi hússins. Meðfylgjandi eru uppdrættir.
Skipulagsstjóri samþykkir 3 metra stæði með 4 metra úrtaki, enda verði frágangur á lóðarmörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

Sækja þarf um byggingarleyfi vegna hugsanlegra útlitsbreytinga á húsinu.

9.Glerárgata 36 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2013060155Vakta málsnúmer

Þann 18. maí 2015 sótti Sigurður Einarsson f.h. Bílasölunnar Bílaríkis ehf., kt. 420190-2209, um viðbótarfrest til að fjarlægja húsið fyrir 30. júní 2015. Meðfylgjandi var samþykki lóðarhafa.

Á afgreiðslufundi 22. maí sl. var frestur veittur til 30. júní 2015.
Skipulagsstjóri fer fram á að sumarhúsið verði fjarlægt af lóðinni og gefur 7 daga frest frá dagsetningu þessa bréfs til að fjarlægja húsið.

Fundi slitið - kl. 14:00.