Kambsmýri 14 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2015050099

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 541. fundur - 22.05.2015

Erindi dagsett 13. maí 2015 þar sem Karl Frímannsson sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús á lóð nr. 14 við Kambsmýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 546. fundur - 25.06.2015

Erindi dagsett 13. maí 2015 þar sem Karl Frímannsson sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús á lóð nr. 14 við Kambsmýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson. Innkomnar teikningar 23. júní 2015.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem hönnuður hefur ekki samþykkt gæðastjórnunarkerfi sbr. ákvæði byggingarreglugerðar.

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 548. fundur - 10.07.2015

Erindi dagsett 8. júlí 2015 þar sem Karl Frímannsson sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 14 við Kambsmýri. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.