Hlíðarfjallsvegur - stöðuleyfi fyrir dreifistöð vegna Unglingalandsmóts o.fl.

Málsnúmer 2015070025

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 548. fundur - 10.07.2015

Erindi dagsett 3. júlí 2015 þar sem Baldur Hólm f.h. Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um leyfi til að setja upp færanlega rafmagnsdreifistöð sunnan Hlíðarfjallsvegar austan svæðis Bílaklúbbsins vegna aðstöðu fyrir Unglingalandlandsmót o.fl. Óskað er eftir stöðuleyfi til 1. september 2015. Meðfylgjandi eru myndir.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.