Undirhlíð - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis norður og deiliskipulagi Stórholts - Lyngholts

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir skv. 1.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögur að breytingu á deiliskipulagi Holtahverfis norður og Stórholts – Lyngholts.

Tillögurnar gera m.a. ráð fyrir breikkun Undirhlíðar, breytingu á aðkomu að lóðum, gönguþverunum og hraðahindrunum. Jafnframt breytast deiliskipulagsmörk lítillega.

Deiliskipulagsuppdrætti má sjá hér og hér.

Tillögurnar verða jafnframt aðgengilegar hjá þjónustu- og skipulagssviði í Ráðhúsi Akureyrarbæjar frá 24.maí - 8.júlí 2023. Hægt er að skila inn athugasemdum um tillögurnar á netfangið skipulag@akureyri.is eða bréfleiðis til Þjónustu- og skipulagssviðs, Ráðhúsi, Geislagötu 9, 600 Akureyri, til 8.júlí 2023.

Athugasemdir teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn þeirra sem senda inn athugasemdir koma fram í fundargerðum skipulagsráðs sem birtar eru á heimasíðu Akureyrarbæjar. Persónuupplýsingar sem fylgja athugasemdum við skipulag, s.s. kennitala, nafn og netfang eru aðeins nýttar í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna sendanda. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hjá Akureyrarbæ hér.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan