Velferðarráð

1382. fundur 28. febrúar 2024 kl. 14:00 - 15:34 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Guðbjörg Anna Björnsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu
  • Hanna Rún Hilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Hanna Rún Hilmarsdóttir fundarritari
Dagskrá
Tinna Guðmundsdóttir F-lista og varamaður boðuðu forföll.

1.Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup 2023

Málsnúmer 2023100247Vakta málsnúmer

Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2023 lagðar fram til kynningar. Sumarliði Helgason sviðsstjóri þjónustu- og skipulagssviðs sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð telur mikilvægt að gerð verði ítarlegri könnun á þjónustu við eldri borgara og fatlað fólk. Velferðarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

2.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2024

Málsnúmer 2024020136Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur velferðarsviðs eftir fyrsta mánuð ársins 2024. Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

3.Húsnæðisúrræði fyrir heimilislaust fólk með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2023100306Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2024 um stöðu í málefnum heimilislausra með fjölþættan vanda.

Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

4.Lautin - húsnæðismál

Málsnúmer 2024021272Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2024 um þarfir Lautarinnar er varðar húsnæði. Ólafur Örn Torfason forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð óskar eftir því að starfsemi Lautarinnar verði fundið hentugra húsnæði þar sem núverandi húsnæði er of stórt og hentar ekki starfseminni. Velferðarráð vísar málinu til bæjarráðs.

5.Samræmd móttaka flóttafólks

Málsnúmer 2023021331Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar drög að samningi við ríkið um samræmda móttöku flóttafólks.
Velferðarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til bæjarráðs.

6.Starfsendurhæfing Norðurlands - tilnefning fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2024021283Vakta málsnúmer

Starfsendurhæfing Norðurlands óskar eftir tilnefningu frá Akureyrarbæ í stjórn félagsins.
Akureyrarbær tilnefnir Önnu Marit Níelsdóttur sem aðalfulltrúa og Karólínu Gunnarsdóttur sem varamann.

Fundi slitið - kl. 15:34.