Velferðarráð

1377. fundur 22. nóvember 2023 kl. 14:00 - 15:23 Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Guðbjörg Anna Björnsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Tinna Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Húsnæðisúrræði fyrir heimilislaust fólk með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2023100306Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 22. nóvember 2023 um húsnæðisúrræði og þjónustu við fólk með fjölþættan vanda.

Anna Marit Níelsdóttir og Bergdís Ösp Bjarkadóttir forstöðumenn sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

2.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2023

Málsnúmer 2023011181Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur velferðarsviðs eftir 10 mánuði ársins 2023.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

3.Fjárhagsaðstoð 2023

Málsnúmer 2023011182Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu 10 mánuði ársins 2023.

Kolbeinn Aðalsteinsson sat fundinn undir þessum lið.

4.Fjölsmiðjan á Akureyri - beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings 2023

Málsnúmer 2023110595Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Erlingi Krisjánssyni forstöðumanni Fjölsmiðjunnar dagsett 14. nóvember 2023 þar sem óskað er eftir endurnýjun á rekstrarsamningi Akureyrarbæjar og Fjölsmiðjunnar.
Velferðarráð felur sviðsstjóra að leggja fram drög að samningi við Fjölsmiðjuna á næsta fundi ráðsins.

5.Reglur um akstursþjónustu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2023110731Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að endurskoðuðum reglum um akstursþjónustu Akureyrarbæjar.
Velferðarráð vísar drögunum til umsagnar öldungaráðs, ungmennaráðs og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.

Fundi slitið - kl. 15:23.