Velferðarráð

1370. fundur 14. júní 2023 kl. 14:00 - 15:31 Glerárgata 26, kálfur, fundarherbergi
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson
  • Tanja Hlín Þorgeirsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Tinna Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Hanna Rún Hilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Hanna Rún Hilmarsdóttir fundarritari
Dagskrá
Tanja Hlín Þorgeirsdóttir B-lista sat fundinn í forföllum Ölfu Drafnar Jóhannsdóttur.

1.Beiðni um að gerður verði þjónustusamningur til 3ja ára við Grófina geðrækt

Málsnúmer 2023060497Vakta málsnúmer

Beiðni um að gerður verði þjónustusamningur til 3ja ára við Grófina geðrækt.

Alfa Dröfn Jóhannsdóttir B-lista, Elsa María Guðmundsdóttir S-lista, Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista og Tinna Guðmundsdóttir F-lista leggja sameiginlega fram tillögu um að gerður verði þjónustusamningur til 3ja ára við Grófina geðrækt.

Pálína Sigrún Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Grófarinnar sat fundinn undir þessum lið.
Grófin geðrækt er mikilvægur vettvangur fyrir fólk sem glímir við geðraskanir. Meirihlutinn vísar málinu áfram til fjárhagsáætlunarvinnu.


Bókun minnihluta: Elsa María Guðmundsdóttir S-lista, Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista, Tanja Hlín Þorgeirsdóttir B-lista og Tinna Guðmundsdóttir F-lista óska bókað: Bæjarstjórn tók til umfjöllunar á fundi þann 2. maí sl. tillögu um að gerður yrði þjónustusamningur við Grófina. Tillagan var felld og vísaði meirihlutinn erindinu áfram til velferðarðarráðs þar sem ráðinu var falið að ljúka vinnu sem lýtur að því að skoða með hvaða hætti sveitarfélagið geti stutt við starfsemi Grófarinnar.

Grófin geðrækt hefur verið starfandi á Akureyri undanfarin 10 ár og öll hljótum við að gera okkur grein fyrir þeirri mikilvægu félagsþjónustu sem veitt er í Grófinni. Endurtekið hafa verið gerðar tilraunir til þess að gera þjónustusamning við Akureyrarbæ og endurtekið hafa þær tilraunir ekki gengið eftir. Ein forsenda Akureyrarbæjar fyrir þjónustusamningi var sú að fyrir hendi væri þjónustusamningur milli Grófarinnar og ríkisins. Sá samningur var undirritaður fyrir tæpum þremur árum. Greinilegt er að ekki stóð til að standa við stóru orðin og niðurstaða fundarins því mikil vonbrigði.

2.Félagslegt leiguhúsnæði - upplýsingar vegna 2023

Málsnúmer 2023060500Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 6. júní 2023 um stöðu leiguíbúða Akureyrarbæjar, svo sem útleigu á árinu og biðlista eftir húsnæði.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Guðni Örn Hauksson húsnæðisfulltrúi sátu fundinn undir þessum lið.
Elsa María Guðmundsdóttir S-lista, Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista, Tanja Hlín Þorgeirsdóttir B- lista og Tinna Guðmundsdóttir F-lista óska bókað: Mikilvægt er að fjölga félagslegum leiguíbúðum á viðráðanlegu verði þar sem töluverður fjöldi er á biðlista, samanber lista frá 31.12.2022. Biðtími er óásættanlegur og mikilvægt er að gert verði ráð fyrir fjármagni í uppbyggingu á félagslega húsnæðiskerfi Akureyrarbæjar í næstu fjárhagsáætlun. Enda væri það í samræmi við þær áherslur sem þegar hafa verið settar fram í húsnæðisáætlun sem nýlega var samþykkt í bæjarstjórn.

3.Umsækjendur um alþjóðlega vernd - samningur

Málsnúmer 2023060499Vakta málsnúmer

Lögð fram til samþykktar drög að samningi við Vinnumálastofnun um móttöku á flóttafólks sem er að sækja um alþjóðlega vernd.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.
Málinu er frestað og velferðarráð felur forstöðumanni félagsþjónustunnar að vinna málið áfram.


Elsa María Guðmundsdóttir S-lista, Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista, Tanja Hlín Þorgeirsdóttir B- lista og Tinna Guðmundsdóttir F-lista óska bókað: Afar mikilvægt er að tryggja umsækjendum viðunandi samgöngur til þess að sækja alla nauðsynlega þjónustu sem þau þurfa á að halda.

4.Velferðarsvið - ársskýrsla 2022

Málsnúmer 2023021048Vakta málsnúmer

Ársskýrsla velferðarsviðs fyrir árið 2022 lögð fram til kynningar.

5.Velferðarráð - fundaáætlun 2023

Málsnúmer 2022110653Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundaáætlun velferðarráðs síðari hluta árs 2023.

Fundi slitið - kl. 15:31.