Velferðarráð

1345. fundur 03. nóvember 2021 kl. 14:00 - 15:41 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • María Sigurbjörg Stefánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá
Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista mætti í forföllum Hermanns Inga Arasonar.

1.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2022

Málsnúmer 2021080521Vakta málsnúmer

Lögð fram og tekin til umræðu hagræðingarkrafa bæjarráðs á velferðarsviði að upphæð 75 m.kr.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.

2.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2021

Málsnúmer 2021031922Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstaryfirlit velferðarsviðs fyrstu 9 mánuði ársins.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.

3.Velferðarstefna 2018-2023

Málsnúmer 2018081103Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað Guðrúnar Sigurðardóttur sviðsstjóra velferðarsviðs dagsett 29. október 2021 um stöðu verkefna í aðgerðaáætlun velferðarstefnu Akureyrarbæjar.

4.Heilsuefling aldraðra - skýrsla starfshóps

Málsnúmer 2021020343Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla starfshóps um heilsueflingu aldraðra gefin út af heilbrigðisráðuneyti í janúar 2021 og aðgerðaáætlun um sama efni útgefin í ágúst 2021.

5.Þróunarverkefni um mælaborð - líðan og velferð aldraðra

Málsnúmer 2020100527Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrslan: Mælaborð um líðan og velferð aldraðra.

6.Samtök um kvennaathvarf - umsókn um rekstrarstyrk 2022

Málsnúmer 2021100590Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Samtökum um kvennaathvarf þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2022 að upphæð kr. 450.000.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

7.Samhygð - ósk um samtal vegna styrks við sorgarsamtök á Norðurlandi

Málsnúmer 2021090848Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Samhygð þar sem óskað er eftir styrk til rekstrarins.
Velferðarráð samþykkir að styrkja Samhygð um kr. 300.000.

Fundi slitið - kl. 15:41.