Velferðarráð

1335. fundur 17. mars 2021 kl. 14:00 - 15:35 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • María Sigurbjörg Stefánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá
Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista mætti í forföllum Hermanns Arasonar.

1.Fjárhagserindi 2021 - áfrýjanir

Málsnúmer 2021010234Vakta málsnúmer

Anna Sigríður Jónsdóttir félagsráðgjafi kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

2.Stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu

Málsnúmer 2020050662Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. mars 2021 um stjórnkerfisbreytingar í velferðarþjónustu.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra, Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fóru yfir vinnuna varðandi stjórnkerfisbreytingar sem áttu sér stað um sl. áramót þar sem sameinuð voru búsetusvið og fjölskyldusvið í nýtt svið, velferðarsvið.

3.Stuðningsfjölskyldur - greiðslur til stuðningsfjölskyldna

Málsnúmer 2012030081Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. mars 2021 frá Karólínu Gunnarsdóttur þjónustustjóra og Fanneyju Jónsdóttur ráðgjafa um þörf fyrir breytingar á greiðslum til stuðningsfjölskyldna.

Velferðarráð leggur til að greiðslur til stuðningsfjölskyldna verði hlutfall af meðlagi.

Fyrir 1. flokk er greitt 85% af einu meðlagi, 2. flokk 75% og fyrir 3. flokk 50%.

4.Samtök um kvennaathvarf - umsókn um rekstrarstyrk 2021

Málsnúmer 2021023175Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 10. febrúar 2021 frá Samtökum um kvennaathvarf þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2021 að upphæð kr. 450.000.
Velferðarráð getur ekki orðið við erindinu.

Fundi slitið - kl. 15:35.